Frétt

26. ágú. 2010

Svæðisþing tónlistarskóla 2010 - DAGSKRÁR fyrir hvert svæði komnar inn

Að venju verða haldin svæðisþing tónlistarskóla um land allt í haust og er þetta í áttunda skipti sem þau fara fram.

Dagsetningar og dagskrár svæðisþinga tónlistarskóla haust 2010:

Sem fyrr verða tekin fyrir fagleg málefni sem eru ofarlega á baugi hjá stéttinni og fylgja hér drög að dagskrárliðum:

Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskóla

Hvernig tókst til með Nótuna 2010 og fyrirkomulag Nótunnar 2011.

Staða tónlistarskóla í dag

Staða tónlistarskóla verður skoðuð og rædd út frá eftirfarandi sjónarhornum: Niðurskurði (fjárframlög sveitarfélaga til tónlistarskóla árin 2008-2010), sameiningum skólastofnana (hver er sérstaða tónlistarskóla innan skólakerfisins sem fagstofnana) og fagmennsku (mikilvægi starfsgleði og góðs starfsanda á krefjandi tímum). Innlegg og umræður.

Valdir kaflar úr eftirfarandi skýrslum verða teknir til umfjöllunar og brotnir til mergjar

  • Rannsókn menntamálaráðuneytisins/Anne Bamford. „Úttekt á stöðu listfræðslu á Íslandi“ (skýrslan verður aðgengileg á íslensku í vor).
     
  • Könnun FT „Greining á kerfi tónlistarskóla á Íslandi“. Mismunandi skólalíkön skoðuð út frá þjónustu-, kostnaðar- og virknistuðlum, skiptingu í námsáfanga, kennslugreinum, aldri nemenda o.fl.

Tillögur að meistaranámi í hljóðfæra- og söngkennslu

Þann 21. september 2009 skipaði rektor Listaháskóla Íslands, Hjálmar H. Ragnarsson, vinnuhóp til að gera tillögur um námsbraut á meistarastigi í hljóðfæra- og söngkennslu við skólann. Vinnuhópurinn skilaði af sér greinargerð og tillögum 15. janúar síðastliðinn. Kynning og umræður.

Svæðisþingin eru haldin í samstarfi Félags tónlistarskólakennara (FT), Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Samtaka tónlistarskólastjóra (STS).


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli