Gjafabréf í flug

Ekki er hægt að skila né skipta gjafabréfum í flug.

ATH! Til þess að kaupa gjafabréf í flug þarf að fara inn á
Mínar síður, velja Orlofssjóð en þar eru gjafabréfið til sölu undir liðnum „miðar og afslættir“.

 

Orlofssjóður KÍ býður félagsmönnum sínum til sölu gjafabréf í flug með Icelandair. Hver félagsmaður getur keypt allt að sex gjafabréf  á ári.

Gjafabréfið gildir í tvö ár en ekki er hægt að fá það endurgreitt. Hvert bréf reiknast sem þrír orlofspunktar.

Verð fyrir gjafabréf hjá Icelandair er 24.000 krónur og gildir það sem 30.000 kr. greiðsla upp í farseðil eða pakkaferð í beinu áætlunarflugi til allra áfangastaða. Ekki er hægt að nota gjafabréfin uppí skatta á vildarmiðum.

Gjafabréfalykilinn er færður inn á síðu í bókunarferlinu sem heitir „Greiðsluupplýsingar“. Reiturinn er neðst á síðunni. Þar er einnig hægt að smella á „Bæta við“ ef nota á fleiri en eitt gjafabréf. Athuga að smella þarf á „Bæta við“ á eftir innslætti hvers gjafabréfalykils.

Eftir að bókun lýkur muntu fá sendan E-miða og kvittun í tölvupósti.

Athugið að ekki er hægt að nýta gjafabréfið eftir að bókun er gerð, heldur er það notað um leið og bókunin er framkvæmd.

Ef bókað er hjá sölumanni gilda reglur Icelandair um þjónustugjöld.

Orlofssjóður KÍ býður félagsmönnum sínum til sölu gjafabréf í flug með Wow air. Hver félagsmaður getur keypt allt að sex gjafabréf á ári.

Gjafabréfið gildir í tvö ár en ekki er hægt að fá það endurgreitt. Hvert bréf reiknast sem þrír orlofspunktar.

Verð fyrir gjafabréf hjá Wow air er 17.000 krónur og gildir það sem 25.000 kr. greiðsla upp í farseðil. Ekki er hægt að nota gjafabréfið uppí pakkaferð einungis flug.

Gjafabréfanúmerið er fært inn á skrefi þrjú í bókunarferlinu. Hnappurinn „Gjafabréf" er valinn, gjafabréfsnúmerið (sextán-stafa kóða) skráð inn og síðan smellt á „Greiðið með gjafabréfi".

Ef inneignin á gjafabréfinu nægir til að greiða alla bókunina er farið sjálfkrafa yfir á skref 4 þar bókunarstaðfesting kemur upp. Ef það er afgangur verður hann eftir á gjafabréfsnúmerinu og hægt er að nota hann næst þegar kaupa þarf miða hjá Wow air.

Ef inneignin á gjafabréfinu dugar aðeins til að greiða hluta bókunarinnar, dregst sá hluti frá verðinu. Afganginn er greiddur með því að skrá inn kreditkortanúmer.

  • Leiðbeiningar eru á vef Wow air.

Hægt er að hringja á skrifstofu Wow air s: 590 3000, gefa upp gjafabréfsnúmerið og fá uppgefna stöðu bréfsins.

ATHUGIÐ vegna Iceland Express 

Samkvæmt síðustu breytinum á flugmarkaðinum vill Orlofssjóður KÍ benda á tilkynningu frá WOW air:

„Gjafabréf sem gefin hafa verið út af Iceland Express munu gilda hjá WOW air með sömu skilmálum.“

Iceland Express gjafabréf eru í gildi hjá WOW air. Athugið að ekki er hægt að bóka þau í gegnum vefsíðu heldur þarf að hringja í þjónustuver WOW air í síma 590 3000. Það þarf að bóka flug og ferðast innan gildistíma gjafabréfsins.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli