Fróði, ráðstefnu- og fundarsalur

Um miðjan ágúst s.l. tók Orlofssjóður formlega í notkun nýjan ráðstefnu- og fundarsal sem staðsettur er í sumarhúsabyggð Kennarasambands Íslands í Heiðarbyggð. Salurinn er á neðri hæð húss númer 2.

Salurinn hlaut nafnið Fróði eftir nafnasamkeppni meðal félagsmanna KÍ þar sem hátt í 300 félagsmenn sendu inn tillögur að tæpum 500 nöfnum. Vinningshafi í nafnasamkeppninni var
Hildur G. Jónsdóttir kennari í Menntaskólanum í Kópavogi. Rökstuðningur hennar fyrir nafninu var eftirfarandi: Fróði „er örvandi og skapandi nafn og segir vonandi til um þann árangur sem næst á fundum í framtíðinni í salnum“. Vinningshafinn fékk í verðlaun helgardvöl í orlofshúsi KÍ í Ásabyggð á Flúðum.

Í salnum er til afnota allur helsti búnaður sem þarf til ráðstefnu og/eða fundarhalda og er hann vel tækjum búinn. Einnig er gott eldhús í salnum með öllum helsta búnaði til að framleiða mat og njóta hans. Fróði tekur um 60 manns í sæti.

Rétt er að vekja athygli á að sumarhúsið sem er á efri hæðinni er leigt út eftir öðrum reglum en önnur hús á vegum Orlofssjóðs þar sem leiga á þessu húsi getur þurft að fylgja leigu á Fróða, af því leiðir að aðeins er hægt að bóka Heiðarbyggð 2, (sumarhúsið) einn mánuð fram í tímann en ekki fjóra mánuði eins og er með aðrar leigueiningar.

Fróði er leigður út beint af skrifstofu Orlofssjóðs í KÍ húsinu, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík og þar er hægt að fá allar nánari upplýsingar.

Til athugunar:

Á fundi stjórnar Orlofssjóðs 18. október 2011, var samþykkt að lækka verð á leigu á Fróða tímabundið eða fram að næstkomandi áramótum. Þetta er gert til að kynna aðstöðuna bæði fyrir vinnustaði og félagsmenn. Verðlagning verður á þennan veg:

  • Salurinn Fróði er leigður á virkum dögum á tímabilinu kl. 10:00 til 17:00 fyrir kr. 35.000 með þrifum.
  • Salurinn Fróði og hús nr. 2 er leigt á tímabilinu föstudegi til sunnudags (helgarleiga) fyrir kr. 60.000 og eru þá þrif innifalin í salarleigunni. Þrif eru ekki innifalin í leigu húss nr. 2 en hægt er að kaupa þrif á því ef óskað er.
  • Eins er hægt að bóka salinn Fróða og hús nr. 2 í eina nótt um helgi og er verðið þá kr. 40.000 með sömu skilyrðum og helgarleigan.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli