Sumarið 2012

Göngu- og hellaferðir ásamt Sæferðum sumarið 2012

Boðið verður upp á margar áhugaverðar ferðir eins og undanfarin sumur, en þær hafa notið mikilla vinsælda. á síðastliðnu ári nýttu sér alls 85 félagar tilboðin og voru farnar átta gönguferðir á ýmsa staði innanlands og í Evrópu. Í sumar göngum við um Ísland og eru ferðirnar margbreytilegar og ná yfir alla landsfjórðunga. Gera má ráð fyrir að 130 félagsmenn geti nýtt sér göngur í sumar. Hver félagsmaður getur keypt tvo afsláttarmiða í eina gönguferð. Verð er mismunandi eftir því hvað er innifalið í ferðinni.

  1. Dalakofinn bækistöðvaferð, 16.-19. júlí - Ferðafélagið Útivist.
  2. Fimmvörðuháls, Magni og Móði, 16.-17. júní - Ferðafélag Íslands (FÍ).
  3. Hellaferð, dagsferð 20. júní - Extreme Iceland.
  4. Héðinsfjörður, Hvanndalir, Hvanndalabjarg, 19.-22. júlí - Ferðafélag Íslands (FÍ).
  5. Hornstrandir, á slóðum rekabænda í Bolungarvík og Reykjarfirði, 24.-29. júlí - Ferðafélag Íslands (FÍ).
  6. Húsvitjun á Heiðarbýlin, 23.-26. júlí - Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.
  7. Laugavegur, 8.-12. ágúst - Ferðafélag Íslands (FÍ).
  8. Síldarmannagötur, 19. ágúst - Ferðafélag Íslands (FÍ).
  9. Stafafell í Lóni, 4.-8. júlí - GBÓ.
  10. Sæferðir.



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli