Reglur um Sjúkrasjóð

1. Nafn og lögheimili

Sjóðurinn heitir Sjúkrasjóður Kennarasambands Íslands. Lögheimili hans og varnarþing er í Reykjavík.

2. Hlutverk

Hlutverk sjóðsins er:

  1. að veita sjóðfélögum fjárhagsaðstoð vegna veikinda, slysa og dauðsfalla,
  2. að styðja sjóðfélaga vegna endurhæfingar eftir slys eða sjúkdóma,
  3. að styðja sjóðfélaga í fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi, heilsufar og heilbrigði þeirra.

Nánar skal kveðið á um greiðslur úr sjóðnum í úthlutunarreglum sem sjóðstjórn setur og skulu þær endurskoðaðar eigi sjaldnar en árlega. Úthlutunarreglur skulu hljóta staðfestingu stjórnar KÍ.

3. Tekjur og greiðslur

Tekjur sjúkrasjóðs eru samningsbundin framlög vinnuveitenda félagsmanna í Kennarasambandi Íslands, svo og vaxtatekjur. Sjóðfélagar teljast þeir sem greitt er fyrir í sjóðinn.

4. Stjórn og hlutverk

Stjórn sjóðsins skipa fimm menn og jafnmargir til vara. Skulu þeir kosnir á þingi KÍ og skal formaður kjörinn sérstaklega. Stjórn skiptir með sér verkum að öðru leyti. Ef formaður lætur af störfum á kjörtímabilinu skipar stjórn KÍ nýjan formann.

5. Fjárhagur og reikningar

Sjóðurinn hefur sérstakan fjárhag. Kostnaður af starfi stjórnar og rekstri sjóðsins greiðist úr Sjúkrasjóði. Reikningsárið er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu birtir með reikningum KÍ, endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum reikninga svo og löggiltum endurskoðanda.

6. Ávöxtun

Fé sjóðsins skal ávaxta á sem tryggastan hátt og skal stjórnin kappkosta að varðveita verðgildi hans eins og frekast er unnt.

7. Lausn frá greiðsluskyldum

Ef farsóttir geisa getur sjóðsstjórn leyst sjóðinn frá greiðsluskyldum sínum um stundarsakir. Einnig getur sjóðstjórn ákveðið að lækka um stundarsakir upphæð dagpeninga og styrkja ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin.

8. Sjóðurinn lagður niður

Verði sjóðurinn lagður niður ráðstafar þing KÍ eignum hans.

9. Breytingar á reglum sjóðsins

Reglum þessum má einungis breyta á þingi KÍ og fer með þær breytingar eins og um lagabreytingar væri að ræða.




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli