Félag tónlistarskólakennara

Félag tónlistarskólakennara (FT) var stofnað 21. nóvember 1982 og er í dag eitt af sjö aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eru þeir sem kenna við tónlistarskóla, skólastjórar og millistjórnendur tónlistarskóla og þeir sem starfa við stofnanir sem þjóna tónlistarskólum. Félagið starfar á landsvísu en 70 tónlistarskólar út um allt land skila gjöldum til Kennarasambands Íslands fyrir um 540 félagsmenn FT.

Hlutverk félagsins er að:

  • Fara með málefni þeirra kennara og skólastjóra í tónlistarskólum, sem eru félagsmenn Kennarasambands Íslands,
  • vera málsvari félagsmanna sinna og gera kjarasamninga fyrir félagið,
  • halda fundi og námskeið fyrir trúnaðarmenn Kennarsambands Íslands í tónlistarskólum,
  • sjá um kjör fulltrúa á þing Kennarasambands Íslands,
  • stuðla að bættri tónlistarkennslu og aukinni menntun tónlistarskólakennara með námskeiðahaldi og fræðslustarfsemi,
  • efla samvinnu og faglega umræðu meðal félagsmanna.



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli