Skólastjórafélag Íslands

Skólastjórafélag Íslands (SÍ) er eitt af sex aðildarfélögum Kennarasambands Íslands með um 580 félagsmönnum. Félagsmenn SÍ eru skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar á grunnskólastigi. Auk þess geta þeir starfsmenn á skólaskrifstofum sem voru í SÍ við lagabreytinguna á aðalfundi 2004 og óska eftir að vera áfram í félaginu, verið það á meðan þeir gegna sama starfi.

Hlutverk félagsins er að fara með málefni félagsmanna og vinna að bættum kjörum þeirra, m.a. með gerð kjarasamninga. Auk kjaramála eru fagleg málefni og skólamál þýðingarmiklir þættir í starfi félagsins, en meðal hlutverka þess er að stuðla að umbótum í fræðslu- og uppeldismálum þjóðarinnar. Þá er eitt af hlutverkum félagsins að vinna að aukinni menntun félagsmann. Félagið gengst fyrir námsstefnum sem eru hluti af endurmenntun félagsmanna.

Samkvæmt lögum SÍ er félagið deildaskipt og er formaður hverrar deildar trúnaðarmaður á sínu svæði. Helstu nefndir og ráð á vegum félagsins eru samninganefnd, kjararáð og skólamálanefnd.

Starfsmaður Skólastjórafélags Íslands er Svanhildur María Ólafsdóttir, netfang: svanhildur hjá ki.is




Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli