Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) á aðild að Kennarasambandi Íslands. Félagsmenn eru aðstoðarskólameistarar, konrektorar, staðgenglar skólameistara / rektors, áfangastjórar svo og aðrir aðstoðarstjórnendur sem hafa helming eða meira af stöðu.
Hlutverk félagsins er að vera málsvari félagsmanna sinna og gera kjarasamninga fyrir félagið. Í lögum félagsins segir að stjórn FS skuli skipuð þremur mönnum og tveimur til vara. Kjörtímabil stjórnar er þrjú ár. Helstu nefndir og ráð á vegum félagsins auk stjórnar eru samninganefnd sem er vettvangur kjaramála og skólamálanefnd er vettvangur þar sem fjallað er um skólamál og ýmis fagleg málefni.