Hér er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsa fundi á vegum FG. Um aðalfundi er fjallað í 5. gr. laga FG en þar segir:
Aðalfundur
5. gr.
Aðalfundur Félags grunnskólakennara skal haldinn þriðja hvert ár í tengslum við þing Kennarasambands Íslands. Aðalfundur hefur æðsta vald í málum félagsins, sbr. þó 19. gr. Á aðalfundi eiga sæti með atkvæðisrétti stjórn, formenn svæðafélaga og einn fulltrúi fyrir hverja 50 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu sem umfram kann að vera. Kjörtímabil þeirra er milli reglulegra aðalfunda félagsins. Stjórnir svæðafélaga annast kosningu aðalfundarfulltrúa. Til aðalfundar skal boðað með a.m.k. 6 vikna fyrirvara. Tillögur til umfjöllunar á aðalfundi þurfa að berast stjórn félagsins eigi síðar en 5 vikum fyrir aðalfund, sbr. þó 20. gr. Aðalfundargögn skulu send út með minnst þriggja vikna fyrirvara.
Þá er fjallað um ársfundi í 8. gr. laga FG:
Ársfundur
8. gr.
Þau ár, sem ekki er haldinn aðalfundur skal stjórn félagsins boða til ársfundar þar sem m.a. er fjallað um starfsemi félagsins og starfsáætlun auk þess sem reikningar þess eru lagðir fram. Rétt til setu á ársfundi hafa stjórn og varastjórn, formenn svæðafélaga, skólamálanefnd, samninganefnd og formenn annarra fastanefnda. Stjórn félagsins hefur umboð til að kalla til fleiri fulltrúa ef þurfa þykir.