Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Kennarasambands Íslands og er eign þess. Lögheimili hans og varnarþing eru í Reykjavík.
Tilgangur sjóðsins og hlutverk sjóðsstjórnar er:
Tekjur sjóðsins eru sérstakt gjald sem vinnuveitendur greiða í Orlofssjóð vegna félagsmanna í KÍ, vaxtatekjur svo og tekjur af rekstri orlofsheimila og ferðaþjónustu.
Stjórn sjóðsins skipa sjö menn og þrír til vara. Skulu þeir kosnir á þingi KÍ. Formaður skal kjörinn sérstaklega og síðan sex meðstjórnendur. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Heimilt er stjórn að kjósa úr sínum röðum þriggja manna framkvæmdastjórn og setur stjórnin henni ákveðnar reglur um verksvið. Reglur þessar skulu hljóta staðfestingu stjórnar KÍ. Einnig er stjórn heimilt að skipa nefndir úr hópi félagsmanna til að annast ákveðin verkefni.
Ef formaður lætur af störfum á kjörtímabilinu skipar stjórn KÍ nýjan formann.
Allur kostnaður af starfi stjórnar og starfsemi sjóðsins greiðist úr Orlofssjóði svo og sú þjónusta sem skrifstofa KÍ veitir skv. samkomulagi við stjórn sambandsins.
Reikningar sjóðsins skulu birtir með reikningum KÍ. Þeir skulu endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum sambandsins svo og löggiltum endurskoðendum.
Reglum þessum má aðeins breyta á þingi KÍ og fer með þær breytingar eins og um lagabreytingu væri að ræða.
Reglur þessar voru samþykktar á 4. þingi KÍ 9. - 11. apríl 2008.
Allur rekstur Orlofssjóðs er greiddur af orlofsgjaldi vinnuveitanda til Orlofssjóðs en er EKKI tekinn af félagsgjöldum félaga í KÍ