Kvittanir fyrir greiðslu sem berast með umsóknum í endurmenntunarsjóði (Vonarsjóð, Vísindasjóð FL og FSL, Vísindasjóð FF og FS og Starfsmenntunarsjóð FT) verða að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
• Nafn greiðanda og/eða kennitölu.
• Nafn móttakanda og/eða kennitölu.
• Upphæð greiðslu.
• Dagsetning greiðslu.
• Hvað er greitt fyrir: heiti námskeiðs og dagsetning.
• Staðfestingu á að reikningur sé greiddur: stimpluð kvittun fyrir greiðslu frá banka eða útprentun úr einkabanka (ef framangreindar upplýsingar koma fram).
Athugið að kvittanir verða að vera á íslensku, ensku eða norðurlandamáli (öðru en finnsku) til að vera gildar.
Ef kvittun er á öðru tungumáli en það verður löggilt þýðing að fylgja með.
• Ekki senda kvittun í wordskjali (verður að vera mynd (t.d. jpeg) eða pdf).
Dæmi um fullgildar kvittanir (smelltu á textann fyrir neðan myndina til að sjá hana stærri): | ||
![]() Stærri mynd |
![]() Stærri mynd |
![]() Stærri mynd |
Dæmi um ófullnægjandi kvittun er t.d. kreditkortastrimill einn og sér þar sem nafn og kennitölu greiðanda vantar: | ||
![]() Stærri mynd |