200 trúnaðarmenn á fræðslufundi

Fréttir|26. október 2026

Metfjöldi trúnaðarmanna KÍ mætti til fræðslufundar á Hótel Grand Reykjavík í síðustu viku.

Uppbygging Kennarasambandsins, starfslok, veikindaréttur, vellíðan og öryggi voru meðal þeirra atriða sem trúnaðarmenn KÍ fengu fræðslu um í liðinni viku. Hefð er fyrir því að bjóða trúnaðarmönnum upp á fræðslufund tvisvar á ári; á vorönn og haustönn. 

Fræðslufundurinn nú þótti takast afar vel og ánægjulegt að segja frá því að met var slegið í fjölda þátttakenda – um 200 trúnaðarmenn voru skráðir til leiks. Um fjórðungur sótti fundinn á Teams en stærstur hluti hópsins kom saman á Hótel Grand Reykjavík. 

Trúnaðarmenn gegna lykilhlutverki á vinnustöðum kennara og stjórnenda. Meginhlutverk þeirra er að gæta þess að farið sé eftir kjarasamningum og að réttindi starfsfólks séu virt. Þannig starfar trúnaðarmaður ávallt í þágu þeirra félagsmanna KÍ á vinnustað sem taka kjör samkvæmt viðkomandi kjarasamningi. Þeir miðla einnig upplýsingum frá Kennarasambandinu og viðkomandi aðildarfélagi. 

Kennarasambandið þakkar öllum þeim trúnaðarmönnum sem sóttu fræðslufundinn kærlega fyrir og óskar þeim velfarnaðar í sínum störfum. 

Sviðmyndir frá fræðslufundinum