Að vera meiri maður
Guðríður Arnardóttir, framhaldsskólakennari og verðandi formaður FF, gerir hugmyndir að styttingu námstíma til stúdentsprófs að umtalsefni í nýjum Vikupósti sem birtur er á vef FF. Umræðan þarf að vera faglegri að mati Guðríðar, það þarf að verja innihald stúdentsprófsins og skoða til hlítar þau áhrif á samfélagið sem slíkar kerfisbreytingar fela í sér.
„Það hlýtur að vera eðlileg krafa um fagleg vinnubrögð að kalla forystu kennara að borðinu þegar unnið er að kerfisbreytingum af þessari stærðargráðu og þá verður líka allt að vera undir. Ræðum skólaárið í heild sinni, hugmyndir um sumarskóla, þriggja anna kerfi, mögulegt framhaldsskólapróf sem er annarrar gerðar en hið hefðbundna stúdentspróf, en ræðum þetta allt í samhengi, af yfirvegun og fagmennsku, tökum okkur tíma og skilum af okkur vönduðu og ígrunduðu dagsverki,“ segir í grein Guðríðar.