Alls úthutað 65 milljónum til 20 verkefna

Sprotasjóður styrkir tuttugu skólaþróunarverkefni þetta árið.
Sprotasjóður hefur úthlutað tæpum 65 milljónum króna til tuttugu skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026-2027.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu á laugardag.
Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla sjóðsins er hjá Rannís. Áherslusvið sjóðsins árið 2026 voru:
- Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi
- Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði
Sjóðnum bárust 39 gildar umsóknir að undangenginni auglýsingu og sótt var um rúmlega 146 millónir króna.
Hægt er að skoða yfirlit styrktra verkefna Sprotasjóðs á gagnatorgi Rannís.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk árið 2026
Styrkþegi
Heiti verkefnis
Styrkupphæð
Kópavogsbær
Gervigreind – Uppspretta nýrra tækifæra?
6.550.000 kr.
Menntaskólinn á Ísafirði
Hönnunarhugsun í þróun kennsluhátta og námsmats
6.250.000 kr.
Mosfellsbær, allir leikskólar
Samskiptasáttmáli Mosfellsbæjar
5.000.000 kr.
Listasafn Íslands
Þar sem sögur mætast
4.460.000 kr.
Hagaskóli
Íslenska í daglegu lífi ungmenna
4.200.000 kr.
Kópavogsbær, menntasvið
Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs
4.000.000 kr.
Foldaskóli
Skólastofa samtímans
4.000.000 kr.
Sveitarfélagið Árborg, leikskólinn Jötunheimar
Mál skiptir máli
3.500.000 kr.
Neyðarlínan ohf.
Stærri og sterkari Sexa
3.410.000 kr.
Lundasel - Pálmholt
Að undrast - Samræður í leikskólastarfi
3.360.000 kr.
Borgarhólsskóli
Lítil skref á leið til læsis
3.200.000 kr.
Reykjavíkurborg, leikskólinn Rauðhóll
Skógarhópurinn - Rannsókn í þágu lýðheilsu barna
3.000.000 kr.
Borgarbyggð, leikskólinn Klettaborg
STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar
2.660.000 kr.
Akureyrarbær, Glerárskóli
Fjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir
2.500.000 kr.
Vogaskóli
Raddir ungmenna, lýðræði, tölfræði og textalæsi
2.000.000 kr.
Akureyrarbær, Iðavöllur
Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms
2.000.000 kr.
Selásskóli
Leikur á viku hreyfing, samvinna og lýðræði í leik
1.730.000 kr.
Alice Demurtas
Kveikt - QFT í Kennslustofunni
1.200.000 kr.
Vogaskóli
Undirbúningur milli skólastiga
800.000 kr.
Reykjavíkurborg, Hvassaleitisskóli
Læsi fyrir lífið
550.000 kr.