Almenn þjónusta við fatlaða nemendur ekki verkfallsbrot

Fréttir|19. mars 2014

Sigurður Ingi Andrésson, formaður verkfallsstjórnar Félags framhaldsskólakennara, hafnar því að félagið líti á frístundaúrræði og skammtímavistun fyrir fötluð ungmenni sem verkfallsbrot. „Fatlaðir nemendur fá ekki kennslu frekar en aðrir nemendur en við höfum ekkert á móti því að Reykjavíkurborg og sveitarfélögin bjóði þessum hópi nemenda almenna þjónustu,“ segir Sigurður.

Frá því var greint á Vísi í morgun að Reykjavíkurborg svaraði því til að ekki væri hægt að bjóða aukna þjónustu við fatlaða nemendur vegna verkfallsins enda fæli það í sér verkfallsbrot. „Svo fremi sem okkar félagsmenn eru ekki fengnir til starfa og þjónustan felur ekki í sér kennslu þá höfum við ekki á móti slíku,“ segir Sigurður.

Fulltrúar verkfallsstjórnar gerðu víðreist í morgun og heimsóttu átta framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Sigurðar gekk ferðin vel en þó eru fáein atriði sem stjórnin mun skoða nánar.

Ekkert nýtt er að frétta af samningaviðræðum en fundur hófst í Karphúsinu klukkan 11 og stendur enn.