Alþjóðasamband kennara sendir stuðningsyfirlýsingu
Fréttir|27. mars 2014
Alþjóðasamband kennara (Education International) lýsir fullum stuðningi við kjarabaráttu framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum. Í Alþjóðasambandi kennara eru um 400 aðildarfélög með um 30 milljón félaga.
Í yfirlýsingunni kemur fram að sambandið styður framhaldsskólakennara af einhug í harðri og erfiðri deilu um launakjör og vinnufyrirkomulag. Þá aukist kröfur til kennara stöðugt og sífellt meiri hæfni sé krafist í kennarastéttinni til þess að takast á við æ flóknari áskoranir í kennslu.
Alþjóðasamband kennara óskar framhaldsskólakennurum og stjórnendum framhaldsskóla velfarnaðar í yfirstandandi baráttu.