Árangurslaus samningafundur

Fréttir|5. febrúar 2014

Samningafundur KÍ og samninganefndar ríkisins vegna kjaradeilu framhaldsskólakennara, sem haldinn var hjá Ríkissáttasemjara í morgun, bar engan árangur. Eina tilboð SNR sem komið hefur fram frá því að samningaviðræður hófust þann 3. desember sl. er það sem samið var um nýlega á almennum vinnumarkaði. SNR hefur engan vilja sýnt til að ræða kjör félagsmanna KÍ í framhaldsskólum sérstaklega.

Við beiðni KÍ um að settur yrði meiri kraftur í að leysa deiluna og að fundum yrði fjölgað, var ekki orðið. Næsti fundur er ekki fyrr en næsta mánudag.