Ástin á starfinu og virðing fyrir hlutverkinu
„ Við þurfum því að koma okkur saman um sterka framtíðarsýn sem skilar okkur þeim árangri sem við viljum ná," sagði Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, þegar hann setti aðalfund félagsins fyrr í dag.
Um sextíu félagar í Félagi framhaldsskólakennara sitja nú aðalfund félagsins á Selfossi. Aðalfundur fer fram á fjögurra ára fresti og er þetta sá níundi í sögu félagsins.
Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, setti fundinn og sagði í upphafi ræðu sinnar að fundarfólk væri saman komið til að skrifa sögu Félags framhaldsskólakennara til næstu fjögurra ára.
„Raunar erum við alltaf að skrifa söguna til miklu lengri framtíðar vegna þess að við erum ekki bara að hugsa um þau okkar sem eru nú við störf heldur þau sem koma á eftir okkur. Við þurfum því að koma okkur saman um sterka framtíðarsýn sem skilar okkur þeim árangri sem við viljum ná," sagði Guðjón Hreinn.
Hann sagði verkefnið meðal annars að skrifa drög að sögu framtíðar en vera á sama tíma tilbúin að endurskoða og endurskrifa eftir því sem hlutunum vindur fram. Það væri í höndum félagsfólks að stýra ferlinu og byggja upp samheldinn hóp sem trúir á eigið virði og ber virðingu fyrir sjálfum sér.
Horft til baka úr framtíðinni
Guðjón Hreinn gerði sér leik að því að tala úr framtíðinni – árið væri 2030 og kjörtímabilið sem nú er að hefjast væri að klárast. Hann sá fyrir sér að árið 2030 myndi hann horfa stoltur á félagana í FF, að samfélagið væri ánægt með að kennarar, starfs- og námsráðgjafar hefðu fengið verðskuldaða leiðréttingu á launakjörum – og að kennarastéttin væri samheldin og stolt af verkum sínum.
„Við höfum unnið að því allt þetta kjörtímabil að tengja okkur saman út frá því sem sameinar okkur, sem er ástin á starfinu, virðingin fyrir hlutverkinu, fagleg sjónarmið, öflug starfsþróun og reglulegt samtal. Við erum gríðarlega ánægð með fyrsta starfsþróunardaginn sem skólaþróunarteymin okkar skipulögðu árið 2028 og yfir okkur sæl með daginn sem haldinn var nú í lok febrúar árið 2030. Hvílík sýning! Hvílík orka! Hvílík fagstétt! Hversu stolt við getum verið!" sagði Guðjón Hreinn um sýn sína á stöðuna árið 2030.
Þétt og mikil dagskrá
Dagskrá aðalfundarins er viðamikil og þétt. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa, nefndavinnu og stefnumörkunar verða flutt tvö erindi. Þar stíga á stokk Helga Björk Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu, en hún fjallar um stöðu verkefnis um gerð virðismatskerfis fyrir þau störf sem félagar í KÍ sinna. Þá mun Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, fjalla um launaþróun og samanburð launa milli markaða.
Aðalfundi FF lýkur síðdegis á morgun, föstudag, og þá tekur ný stjórn félagsins formlega við stjórnartaumunum.