Átelja menntamálayfirvöld fyrir hringlandahátt
Eftirfarandi ályktun um nám í framhaldsskólum var samþykkt á aðalfundi Félags framhaldsskólakennara nú rétt í þessu.
Aðalfundur Félags framhaldsskólakennara haldinn 20. - 21. mars 2014 átelur menntamálayfirvöld fyrir hringlandahátt, villandi umræður og skammsýni í málefnum framhaldsskólans. Síðustu ár hafa hættumerkin hrannast upp í framhaldsskólunum og stjórnvöld hafa kosið að hundsa þau. Sex ár eru síðan gildandi framhaldsskólalög voru sett og enn er óljóst um framkvæmd ýmissa ákvæða laganna sem fela í sér ávinning fyrir nemendur svo sem ákvæði um heilsuvernd, hollustuhætti, forvarnir, námsgögn og mat á skólastarfi. Aðalfundurinn gagnrýnir hversu hægt gengur að fá fram skýra mynd af því hvernig lögin verða efnd og undirstrikar nauðsyn þess að nemendur fái lögfesta réttarbót.
Á sama tíma og sex ára gömul lög hafa ekki verið innleidd eru frekari breytingar boðaðar, það er stytting náms til stúdentsprófs. Látið er sem í því felist menntastefna og um sé að ræða mikilvægt framfaraskref fyrir íslensk ungmenni. Staðreyndin er hins vegar sú að ekkert annað virðist liggja til grundvallar en að þrengja enn frekar að framhaldsskólunum sem eru algerlega fjársveltir fyrir. Fremur en að ráðast í slíkar breytingar sem snerta aðeins hluta náms á framhaldsskólastigi ætti að skoða menntakerfið í heild sinni og móta metnaðarfulla framtíðarsýn sem byggist á samfélagslegri sátt.
Endurskoðun á menntakerfinu er öllum holl en slík endurskoðun þarf að taka til náms á öllum skólastigum. Taka þarf tillit til sérkenna íslensks framhaldsskóla, áhuga og þarfa nemendahópsins sem og þarfa samfélagsins fyrir menntun á þessu skólastigi.
Aðalfundurinn leggur áherslu á að tryggja verði sem fjölbreyttast nám við hæfi allra nemenda í framhaldsskólunum. Það sem skiptir mestu máli, hvort sem nemendur taka stúdentspróf, stunda starfsnám til ákveðinna starfsréttinda eða nám á styttri námsbrautum, er að vera vel læs á samfélag sitt og náttúru landsins. Komandi kynslóðir verða að hafa gott vald á móðurmáli, erlendum tungumálum, stærðfræði og raungreinum, tjáningu, samskiptum og upplýsingatækni, þekkingu á samfélaginu í nútíð, fortíð og tengslum þess við umheiminn.