Athugasemd við fullyrðingar starfsmanns Námsmatsstofnunar

Fréttir|6. mars 2014

Formaður Kennarasambandsins, Þórður Á. Hjaltested, hefur gert athugasemdir við orð sem höfð voru eftir Almari Halldórssyni, starfsmanni Námsmatsstofnunar í Morgunblaðinu, fyrr í vikunni. Orðrétt sagði Almar:

„Það mætti vera meiri harka í vali nemenda í Kennaraháskólann. Þar á bara að hleypa í gegn klára fólkinu, sama hvað Kennarasambandið segir.“

Ljóst er að þetta er í engu samræmi við stefnu Kennarasambandsins. Í bréfi sem Þórður sendi Júlíusi Björnssyni, forstöðumanni Námsmatsstofnunar, vegna málsins segir meðal annars:

„Það undrar okkur hér á Kennarasambandinu hvernig Almar setur fram fullyrðingu í viðtali sem birt er í grein í Morgunblaðinu í morgun. Þar er látið að því liggja að KÍ hlutist til um að námskröfur í kennaramenntastofnunum hér á landi sé haldið niðri til að hleypa fleiri nemendum í gegnum námið. Þessu hafna ég alfarið og mótmæli slíkri framsetningu frá starfsmanni Námsmatsstofnunar“.

Og Þórður heldur áfram:

„KÍ hefur ekki yfirvald yfir háskólum landsins. Menntamálaráðuneytið hefur þetta á sinni könnu og Alþingi setur lög. KÍ hefur aftur á móti skoðun á því hvernig námið eigi að vera og beitir kröftum sínum til að hafa áhrif á stefnumótunina.“

Júlíus hefur þegar beðist afsökunar á ummælum undirmanns síns.