Atkvæðagreiðsla í formanns- og stjórnarkjöri FF hafin

Fréttir|26. janúar 2026

Félagsfólk Félags framhaldsskólakennara velur sér nú formann og stjórn fyrir næsta kjörtímabil.

Atkvæðagreiðsla í kosningum til formanns og stjórnar Félags framhaldsskólakennara hófst klukkan tíu í morgun, mánudaginn 26. janúar. Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. 

Kjörstjórn FF hefur ákveðið eftirfarandi: 

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan tíu mánudaginn 26. janúar 2026
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan tíu fimmtudaginn 29. janúar 2026. 

Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörstjórn áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.

Frambjóðendur til formanns FF eru:

  • Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
  • Simon Cramer Larsen, formaður skólamálanefndar FF og dönskukennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla. 

Hægt er að kynna sér framjóðendur til formanns hér. 

 

Frambjóðendur til stjórnar FF eru:

  • Anna Jóna Guðmundsdóttir, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
  • Arnar Guðmundsson, Borgarholtsskóla
  • Björn Gísli Erlingsson, Menntaskólanum á Egilsstöðum
  • Daði Guðjónsson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
  • Guðmundur Björgvin Gylfason, Fjölbrautaskóla Suðurlands
  • Gunnvör Rósa Eyvindardóttir, Menntaskólanum við Sund
  • Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
  • Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Borgarholtsskóla
  • Simon Cramer Larsen, Fjölbrautaskólanum við Ármúla
  • Sólrún Geirsdóttir, Menntaskólanum á Ísafirði
  • Stefán Svavarsson, Menntaskólanum í Kópavogi

Kosnir verða fjórir fulltrúar í stjórn FF. 

Frambjóðendur kynna sig 

 

Um atkvæðagreiðsluna

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is  Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum.

Þegar komið er inn á Mínar síður sjást tvennar kosningar.

  • Kosning til formanns FF 2026 – Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FF.
  • Kosning til stjórnar FF 2026 - Merktu við þá fjóra frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn FF.
  • Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt er móttekið.
  • Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við
  • Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
  • Athygli skal vakin á því að samkvæmt starfsreglum kjörstjórnar er einungis hægt að kjósa 4 í stjórn félagsins, hvorki fleiri né færri.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is  sími: 595 1111.