Barátta allra félagsmanna KÍ
Þórður Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, ávarpaði aðalfund Félags framhaldsskóla sem var settur í dag. Yfirskrift aðalfundarins er Bætt kjör, betri skóli.
„Nú er fjórði dagur í verkfalli og það er miður að þurft hafi að grípa til þessa úrræðis til þess að ná fram sanngjörnum kröfum,“ sagði Þórður í ræðu sinni. Hann sagði baráttu framhaldsskólakennara baráttu allra félagsmanna innan Kennarasambands Íslands og að öll aðildarfélögin stæðu að baki framhaldsskólakennurum. „Nú er mál að við tölum einum rómi, samstaða er alltaf mikilvæg en aldrei sem nú,“ sagði Þórður.
Þá sagði Þórður með ólíkindum hve menntamálaráðherra væri úr takti þegar hann blandaði styttingu námstíma til stúdentsprófs inn í kjaraviðræðurnar. „Ég skora á ráðamenn að setja menntamál í forsæti og ganga strax til samninga við kennara,“ sagði Þórður í lok ræðu sinnar.
Fráfarandi formaður FF, Aðalheiður Steingrímsdóttir, setti fundinn og aðrir sem tóku til máls voru Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, formaður Félags íslenskra framhaldsskóla og skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Ólafur H. Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Að ávörpum loknum tóku við hefðbundin aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar og ársreikningar voru kynnt og samþykkt.
Aðalfundi verður framhaldið á morgun og þá tekur ný stjórn Félags framhaldsskólakennara formlega við.