Barnaskóli Kársness

Fréttir|22. maí 2026
Bsk
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Miðvikudaginn 20. maí 2026 fórum við ásamt sérkennslustjórum í Reykjavík að heimsækja Barnaskóla Kársness. Barnaskóli Kársness er nýr skóli í Kópavogi sem hóf göngu sína í ágúst 2025. Barnaskóli Kársness er samrekinn leik- og grunnskóli. Í skólanum verða börn frá 1 til 10 ára. Hann stendur milli Skólagerðis og Holtagerðis og er tæpir 6000 fm að stærð. Skólinn er reistur úr timbureiningum og byggingin Svansvottuð. Gerður Magnúsdóttir skólastjóri tók vel á móti hópnum, kynnti framtíð skólans og sýndi húsakynni leikskóladeildanna.

Skólinn er einstaklega fallegur, hlýlegur og hljóðvist er tekin upp á annað stig í þessum barnaskóla. Öll aðstaða til tónlistar, myndsköpunar, textíl og matreiðslu er til mikillar fyrirmyndar. Þetta skólaár var lögð megin áhersla á að bæði börn og starfsfólk kæmi sér fyrir í nýjum aðstæðum, reyndar í bland við iðnaðarmenn, því skólinn er ekki fullbúinn ennþá.  Næsta skólaár verður svo farið í stefnumótun og skólinn fylltur af börnum. Það á m.a. eftir að opna eina leikskóladeild. 

Það er óhætt að óska Gerði skólastjóra og hennar fólki innilega til hamingju með glæsilegan barnaskóla. Takk fyrir að taka á móti okkur. 

Við tókum fullt af myndum sem sjá má hér.

Bsk