Barnið á að vera kóngurinn

Fréttir|22. janúar 2026

„Einu sinni var“ er fastur dálkur í Skólavörðunni. Að þessu sinni er gripið niður í grein sem birtist í Kennarablaðinu árið 1900 og fjallar um mikilvægi leiksins.

Tíminn frá miðri 19. öld fram yfir fullveldistöku var tímabil mikillar grósku í íslensku samfélagi. Þetta var tímabil naflaskoðunar og sjálfsrýni sem varðaði leiðina fyrir þjóð sem vissi að hún vildi verða sjálfstæð en var enn að móta það með sér hvernig hún vildi verða. 

Í Kennarablaðinu birtist dálítið gullkorn aldamótaárið 1900; greinin Leikur barnanna.

Í greininni er fjallað um að Íslendingar séu alvörugefin þjóð, sem í sjálfu sér sé mikilvægt, en að alvörunni þurfi að stilla í hóf þegar komi að þroska og námi barna. Of mikið sé um það að vaxtarskilyrði barna ráðist af hugmyndum fólks sem annað hvort fékk ekki að njóta þess að vera börn eða hefur gleymt því hvernig það er. Við grípum niður í textann þar sem mikilvægi leiksins er lýst:

„Af öllu þessu má sjá, að leikar barnanna eru hið besta uppeldismeðal, sem unnt er að beita gagnvart ungum börnum. En til þess að hinir eldri geti fært sér þetta meðal réttilega í nyt, hljóta þeir að hafa vakandi auga með barninu og leikum þess. Þetta er oft hið mesta vandaverk, því annars vegar verða menn að gæta þess að beina starfi þess í rétta átt, og hins vegar að fara svo varlega, að barnið verði sem allra minnst vart við annarleg yfirráð. Sé gripið fram fyrir hendur þess með valdi, þá er öll ánægjan búin og nytsemi leiksins spillt. Barnið á að vera kóngurinn, hinir eldri aðeins ráðgjafar þess.“

Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tölublaði 2021. Lesa Skólavörðuna.