Björg Bjarnadóttir lætur af varaformennsku KÍ

Fréttir|4. apríl 2014

Björg Bjarnadóttir lét í dag af varaformennsku KÍ eftir þriggja ára starf. Við starfi Bjargar tekur Aðalheiður Steingrímsdóttir, fyrrverandi formaður Félags framhaldsskólakennara.

Björg ávarpaði þing Kennarasambandsins í dag og fór yfir feril sinn innan KÍ. Hún sagðist í ræðu sinni sannfærð um að það hafi verið hárrétt skref sem stigið var um aldamótin síðustu þegar hið nýja Kennarasamband Íslands var myndað. „Kennarar eru ein stétt og eiga að standa þétt saman þrátt fyrir ólíka menningu skólastiganna og skólagerðanna,“ sagði Björg.

Hún sagði kennara litríkan hóp með mismunandi skoðanir og sýn en allir stefndu að sama markmiði, „...að mennta börn og ungmenni til að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi. Ég spái því að það líði ekki á löngu þar til einungis nafnið okkar stendur á spjöldunum og enginn verði að velta því neitt sérstaklega fyrir sér úr hvaða aðildarfélagi hver og einn kemur.“

Björg sagðist hafa lagt áherslu á að treysta böndin á milli félaga og lækka girðingarnar. „Ég hef verið talsmaður samvinnu og samræmingar, ég lagði mig fram við það sem formaður í aðildarfélagi og brann fyrir því sem varaformaður KÍ,“ sagði Björg í kveðjuræðunni.

Þórður Hjaltested, formaður KÍ, færði Björgu hugheilar þakkir fyrir störf hennar í þágu Kennarasambandsins. Hann sagði Björgu hafa leitt starf framkvæmdastjórnar skólamálaráðs af mikilli festu og öryggi. Starfsfólk KÍ hafi ætíð borið mikið traust til Bjargar og hún hafi haldið vel utan um starfsmannamál sambandsins. Þá hafi hún verið glæsilegur fulltrúi kennara í fjölda nefnda og ráða fyrir hönd KÍ síðustu þrjú árin. „Björg hefur ríka jafnréttiskennd og er ávallt tilbúin að aðstoða fólk í kringum sig,“ sagði Þórður Hjaltested og bætti við að Bjargar yrði sárt saknað í Kennarahúsinu.

Þingfulltrúar stóðu upp að lokinni ræðu Bjargar, klöppuðu vel og lengi og hrópuðu ferfalt húrra fyrir fráfarandi varaformanni.