Blásum byr í seglin

Fréttir|7. október 2026

Kennarasambandið boðar til blaðamannafundar á í dag kl. 14:30 þar sem tillögur að stefnumótun í menntamálum verða kynntar. Fundinum verður streymt á Vísi.

Kennarasambandið boðar til blaðamannafundar í dag 7. október þar sem tillögur að stefnumótun í menntamálum verða kynntar. 

Það er í fyrsta sinn í sögu KÍ sem sambandið leggur, með þessum hætti, fram sína sýn og áherslur er varða umbætur í íslensku menntakerfi. Framsögumaður á fundinum verður Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.

Fundurinn hefst klukkan 14:30 og fer fram í Réttarholtsskóla. 

Nánar verður sagt frá efni fundarins að honum loknum.