Bókleg fög kennd með leik og hreyfingu

Fréttir|21. janúar 2014

Námskeið í kennsluaðferðinni Leikur að læra verður haldið 29. janúar næstkomandi. Leikur að læra er aðferð þar sem börnum á aldrinum 2 til 10 ára eru kennd öll bókleg fög í gegnum leiki og hreyfingu á skemmtilegan og líflegan hátt. Kristín Einarsdóttir, íþrótta- og grunnskólakennari, hefur þróað aðferðina undanfarin ár og notað við eigin kennslu.

Á námskeiðinu verður farið yfir mikið efni sem kennarar geta nýtt sér, þeir upplifa sjálfir hvernig Leikur að læra virkar á mismunandi aldurshópa og það auðveldar innleiðingu aðferðarinnar að námskeiði loknu. Hægt er að lesa nánar um aðferðina hér og einnig er hægt að horfa á kynningarmyndband á Youtube, með því að slá inn: leikur að læra. Allar nánari upplýsingar veitir Kristín í gegnum netfangið kristin@leikuradlaera.is.