Börn hafa hundrað mál - Skapandi starf í leikskólum

Fréttir|9. október 2022
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Málþing Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldið í samstarfi við leikskólann Stekkjarás mánudaginn 14. nóvember nk. kl. 13:00 til 15:30 í leikskólanum Stekkjarási.  Megin markmið málþingsins er að efla skapandi starf í leikskólum. Að vanda verður ókeypis eins og á alla viðburði Faghópsins, en í þetta sinn þarf að skrá sig og ákveða hvora málstofuna þið viljið sækja og hvenær. Það er nauðsynlegt til þess að stýra fjölda í hverri málstofu fyrir sig.

Málþing Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldið í samstarfi við leikskólann Stekkjarás mánudaginn 14. nóvember nk. kl. 13:00 til 15:30 í leikskólanum Stekkjarási. 

Megin markmið málþingsins er að efla skapandi starf í leikskólum. Í þetta sinn verða haldnar tvær málstofur og þær svo endurteknar eftir gott kaffihlé þar sem þátttakendum býðst að skoða leikskólann. Af hverju endurtökum við málstofurnar, jú það var ósk félagsmanna og þátttakenda á síðasta námskeiðsdegi/málþingi að endurtaka dagskrána svo þeir missi ekki af neinu. Auðvitað verðum við við óskum ykkar. 

Eins og heiti málþingsins gefur til kynna þá er verið að vísa í hugmyndafræði skapandi skólastarfs sem kennt er við Reggio Emilia á Ítalíu, en "Börn hafa hundrað mál" er setning sem Loris Malaguzzi viðhafði og sagði að börn hefðu hundrað mál og frá þeim tekin nítíu og níu. Hann rökstuddi það meðal annars með að börn hafi meðfædda hæfileika til að lesa umhverfi sitt með öllum skilningavitum og afla sér fróðleiks og þekkingar sem er margfalt flóknari en almennt hefur verið talið. 

Að vanda verður ókeypis eins og á alla viðburði Faghópsins, en í þetta sinn þarf að skrá sig og ákveða hvora málstofuna þið viljið sækja og hvenær. Það er nauðsynlegt til þess að stýra fjölda í hverri málstofu fyrir sig. 

Dagskrá

Kl. 13:00 Setning málþings, Fjóla Þorvaldsdóttir formaður Faghóps um skapandi leikskólastarf

Kl. 13:10 Málstofur
Málstofa 1
Kristín Hildur Ólafsdóttir Verkefnastjóri SFS, Skapandi leikskólastarf
Sigurbjörg Lára Kristinsdóttir leikskólakennari í Stekkjarási, Hafa börn rödd ef enginn hlustar.

Málstofa 2
Anna Guðmundsdóttir leikskólakennari, listasmiðjustjóri og Kristín Helgadóttir leikskólastjóri í Lyngheimum. Starfið í Lyngheimum.
Anna Gréta Guðmundsdóttir listasmiðjustjóri Sæborg, Fagurfræði og leikskóli.

Kl. 14.00 Kaffihlé

Kl. 14:40 Málstofur
Málstofa 1
Kristín Hildur Ólafsdóttir Verkefnastjóri SFS, Skapandi leikskólastarf
Sigurbjörg Lára Kristinsdóttir leikskólakennari í Stekkjarási, Hafa börn rödd ef enginn hlustar.

Málstofa 2
Anna Guðmundsdóttir leikskólakennari, listasmiðjustjóri og Kristín Helgadóttir leikskólastjóri í Lyngheimum. Starfið í Lyngheimum.
Anna Gréta Guðmundsdóttir listasmiðjustjóri Sæborg, Fagurfræði og leikskóli.

Kl. 15:30 Málþingi lokið

Skráning fer fram hér.

Allar nánari upplýsingar á netfanginu listgreinakennarar@gmail.com