Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur á morgun

Fréttir|5. febrúar 2014

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins á morgun, 6. febrúar. Þetta er í sjöunda skipti sem dagurinn er haldinn en 6. febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Leikskólar hafa á undanförnum árum fagnað Degi leikskólans með margvíslegum hætti. Við hvetjum alla sem koma að málefnum leikskóla á einn eða annan hátt til að halda Degi leikskólans á lofti og nýta hann til þess að kynna það mikilvæga starf sem fram fer í leikskólum landsins.