Diplómanám í leikskólafræðum í boði í HA
Boðið verður upp á 120 ECTS eininga diplómanám í leikskólafræðum í Háskólanum á Akureyri frá og með haustinu 2014. Um er að ræða tveggja ára nám sem er skipulagt með svipuðu sviði og nám til bakkalárgráðu en með meiri áherslu á nám á vettvangi. Sömu inntökuskilyrði eru í diplómanám og aðrar námsleiðir. Að náminu loknu útskrifast nemendur með diplómu og geta innritað sig í 60 eininga nám til bakkalárgráðu.
„Námið er hugsað sem leið í því að fjölga leikskólakennurum. Á árunum 2000-2005 boðið upp á í HÍ 90 ECTS eininga diplómanámi sem reyndist mikil lyftistöng í fjölgun leikskólakennara. Nær allir sem hófu það nám héldu áfram námi, útskrifuðust sem leikskólakennarar og fengu leyfisbréf ráðherra til kennslu á leikskólastigi," segir Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.
Haraldur segir mikilvægt að hafa í huga að ekki sé verið að gefa neinn afslátt af leikskólakennaranáminu. „Það er eingöngu verið að auðvelda fólki að klára leikskólakennaranámið á þeim hraða sem því hentar. Þeir sem ákveða að taka hvíld frá námi eftir 120 ECTS einingar fá hins vegar engin önnur starfsréttindi og eru eingöngu ráðnir innan 1/3 hlutans. Eingöngu þeir sem hafa leyfisbréf ráðherra til kennslu á leikskólastigi eru með lögverndað starfsheiti og ganga fyrir í störf innan 2/3 hlutans eins og lögin kveða á um," segir Haraldur F. Gíslason.
Áhugasamir geta kynnt sér námið á vefsíðu Háskólans á Akureyri.