Efins um skírteini fyrir nemendur sem ljúka framhaldsskólaprófi
Atli Harðarson, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands, hefur efasemdir um hugmyndir mennta- og menningarmálaráðuneytisins um að nemendur sem ljúka framhaldsskólaprófi fái prófskírteini með umsögn sem lýsi sjálfsmynd þeirra, lífsskoðunum og siðferðilegum mannkostum. Atli fjallar um málið í nýjum vikupósti á vef Félags framhaldsskólakennara.
Hann segir vandséð að skóli geti komið sér upp traustum gögnum um sjálfsmynd, hugsunarhátt eða siðferði nemenda. „Gögn um lífsskoðanir eru líka viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi laga um persónuvernd,“ skrifar Atli.
Fram kemur að umsagnirnar eigi aðeins að standa á skírteinum þeirra sem ljúka framhaldsskólaprófi en ekki ekki á stúdentsskírteinum og prófskírteinum þeirra sem ljúka til dæmis iðnnámi. „Það stendur sem sagt til að skólar úrskurði um almenna mannkosti þeirra sem útskrifast með minni skammt af námi úr framhaldsskóla en sleppi slíkum palladómum um þá sem klára lengra nám,“ skrifar Atli.