Ég beið þín lengi lengi
„Davíð Stefánsson yrkir í mörgum ljóðum sínum um þá sem sitja og bíða. Eins er þeim nú farið sem starfa í framhaldsskólunum. Þeir bíða og hafa beðið,“ skrifar Anna María Gunnarsdóttir, kennari við FB, í nýjum vikupósti á vef FF. Anna segir framhaldsskólalögin, sem samþykkt voru 2008, hafa falið í sér fögur fyrirheit. „Fyrir það fyrsta áttu þau ekki að leiða til skerðingar á gildi stúdentsprófs. Þau áttu að skýra námsuppbyggingu og auka námsframboð í framhaldsskólum, ekki leggja megináherslu á bóknám heldur efla tækninám og fjölga starfsnámsbrautum.“
Anna segir þá sem starfa í framhaldsskólum reyna að láta kerfið ganga með yfirfulla námshópa, úreltan tækjabúnað og kjör sem eru sögulega slök.
„Eins og málum er nú háttað er framhaldsskólakerfinu í landinu sýnd óþolandi óvirðing. Skólafólkið situr í öskustó meðan yfirmenn menntamála gera allt í felum eða gera alls ekki neitt,“ skrifar Anna M. Gunnarsdóttir.