Eiginlega ættu nemendur og aðstandendur að fara í verkfall

Fréttir|28. janúar 2014

„Námsframboð hefur verið skert og auðvitað fá nemendur ekki það nám sem þeir eiga skilið,“ skrifar Ágúst Ásgeirsson, framhaldsskólakennari við MS, í nýjum vikupósti á vef FF. Ágúst gerir niðurskurð í framhaldsskólum meðal annars að umtalsefni í grein sinni og segir hann einkum hafa náðst í gegnum vinnutíma kennara.

„Menntamálaráðuneytið er þakklátt kennurum fyrir að hafa með sveigjanlegum vinnutíma sínum gert samfélaginu kleift að halda ungmennum í skóla á krepputímum og ennfremur öllum þeim öðrum sem sækja framhaldsskóla. Í kreppu tókst að draga saman útgjöld til skóla um 25% - 35% að raungildi, án þess að vísa nemendum frá skóla,“ skrifar Ágúst.