Enn fundað stíft

Fréttir|10. mars 2014

Viðræðunefndir Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum hafa haldið 26 samningafundi frá byrjun desember sl. Undanfarnar tvær vikur hafa fundir verið haldnir nær daglega, bæði vinnufundir og formlegri fundir undir stjórn sáttasemjara.

Erfitt er að spá nokkru um árangur á næstu dögum en samningsaðilar hafa verið sammála um að kappkosta að ná niðurstöðu um nýjan kjarasamning áður en til boðaðra verkfalla kemur í framhaldsskólum 17. mars.

Samningaviðræðurnar bera þess merki hversu framhaldsskólarnir eru illa staddir fjárhagslega og hversu lengi hefur dregist að fjalla um og bregðast við lakri launaþróun félagsfólks KÍ í framhaldsskólum.


  Samninganefnd Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum.