Eru kennarar og skólastjórnendur tryggðir í starfi?
Stutta svarið er já, kennarar og skólastjórnendur í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum eru tryggðir í starfi en tryggingarnar ná ekki til allra tjóna sem þeir geta orðið fyrir í tengslum við störf sín og bæta ekki í öllum tilvikum tjón til fulls. Þá ber að hafa í huga að starfsmenn geta fyrirgert sér rétti til bóta eða bætur geta verið skertar ef slys eða annað tjón má rekja til ásetnings, gáleysis eða hirðuleysis viðkomandi starfsmanns.
Hvaða tryggingar er kveðið á um í kjarasamningum?
Kjarasamningar félagsfólks Kennarasambands Íslands (KÍ) kveða á um tryggingar vegna:
- Varanlegrar örorku og dauða af völdum slysa bæði á vinnutíma og utan vinnu.
- Útgjalda vegna vinnuslyss sem almannatryggingar bæta ekki.
- Farangurs í vinnuferðum.
- Tjóns á persónulegum munum t.d. fatnaði, gleraugum og úrum við vinnu.
Kjarasamningar kennara og stjórnenda í leik- og grunn- og framhaldsskólum hafa auk þess að geyma ákvæði þess efnis að verði starfsmaður fyrir tjóni í starfi sínu við að sinna einstaklingi sem að takmörkuðu eða jafnvel engu leyti getur borið ábyrgð á gerðum sínum þá á viðkomandi rétt á að beina skaðabótakröfu sinni vegna líkams- eða munatjóns að launagreiðanda. Við mat og uppgjör kröfunnar gilda almennar reglur skaðabótaréttarins. Að uppgjör slíkra krafna fari eftir almennum reglum skaðabótaréttarins felur í sér betri tryggingavernd því þá eru meiri líkur á að stærri hluti tjóns fáist bætt þar sem hinar ofangreindu tryggingar eru líklegri til að bæta tjón aðeins að hluta m.a. vegna takmarkana á tryggingafjárhæðum.
Mikilvægt er að tilkynna um tjón og slys til vinnuveitanda, Sjúkratrygginga Íslands og tryggingafélags vinnuveitanda tafarlaust. Í þeim tilvikum sem grunur er um varanlega örorku þá þarf örorkumat að fara fram eigi síðar en þremur árum frá slysdegi. Þá þarf að hafa í huga að kröfur vegna trygginga kunna að fyrnast á fjórum árum. Í sumum tilvikum er fyrningafrestur þó lengri.
Hvað tryggja Sjúkratryggingar Íslands?
Slysatryggingar almannatrygginga taka m.a. til slysa sem verða við vinnu óháð sök vinnuveitanda. Til eru margar skilgreiningar á slysahugtakinu en þegar metið er hvort Sjúkratryggingar Íslands skuli greiða bætur telst slys vera skyndilegur óvæntur atburður sem veldur meiðslum á líkama hins tryggða og gerist án vilja hans.
Einstaklingur telst vera við vinnu:
- þegar hann er á vinnustað á þeim tíma þegar honum er ætlað að vera að störfum,
- í ferðum á vegum vinnuveitanda séu greidd laun á meðan á ferðinni varir,
- í matar og kaffitímum og
- á eðlilegri leið til og frá vinnu.

Mikilvægt er að tilkynna um tjón og slys til vinnu veitanda, Sjúkratrygginga Íslands og tryggingafélags vinnuveitanda tafarlaust
Slys telst ekki verða við vinnu ef það hlýst af athöfnum hins slasaða sem eru ekki í neinu sambandi við vinnuna. Hafi hinn slasaði verið valdur að slysi af ásetningi eða stórfelldu gáleysi er heimilt að lækka eða fella niður greiðslur bóta. Bætur falla niður ef bótaskylda er fyrir hendi samkvæmt lögboðinni ábyrgðartryggingu ökutækis eða slysatryggingu ökumanns og eiganda.
Bætur slysatrygginga almannatrygginga eru sjúkrahjálp, dagpeningar, miskabætur vegna varanlegs líkamstjóns og dánarbætur. Hámarksfjárhæðir gilda um greiðslu dagpeninga, miskabóta og dánarbóta og því kann sú staða að koma upp að slysatryggingar almannatrygginga dekki ekki tjón að fullu.
Slasist starfsmaður skóla þá er það almennt skólastjóri/skólameistari sem ber ábyrgð á því að tilkynna um slys tafarlaust til Sjúkratrygginga Íslands og Vinnueftirlitsins. Starfsmaðurinn getur sent tilkynningu sjálfur. Sá slasaði þarf að útvega áverkavottorð vegna slyssins t.d. frá bráðamóttöku eða heilsugæslu og skila til Sjúkratrygginga Íslands. Líði meira en ár frá slysi þar til tilkynnt er um það kann bótaréttur frá Sjúkratryggingum Íslands að glatast. Það er því afar mikilvægt að starfsmaður fylgi því eftir að slysið sé tilkynnt og tilkynni sjálfur sendi vinnuveitandi ekki tilkynningu tafarlaust.
Get ég aukið tryggingarvernd mína og keypt mína eigin tryggingu?
Já, sum tryggingafélög bjóða m.a. upp á starfsábyrgðar- og slysatryggingar.
Getur vinnuveitandi þurft að greiða hærri bætur vegna vinnuslyss en tryggingaskilmálarnir kveða á um?
Já, ef vinnuslys er rakið til sakar vinnuveitanda getur vinnuveitandi þurft að greiða hærri bætur en tryggingaskilmálar viðeigandi kjarasamnings kveða á um. Dæmi um sök vinnuveitanda er ef hann gerir ekki nægilegar öryggisráðstafanir og leiða má af því líkum að það hafi átt þátt í slysi. Dæmi um öryggisráðstafanir sem skólastjórar/ skólameistarar bera ábyrgð á að sé sinnt eru að setja hálkuvarnir sé hálka á skólalóð og tryggja að nemendur sem geta verið hættulegir sjálfum sér og öðrum fái viðeigandi stuðning og skólaumhverfi.
Segja má að málsatvik þau sem fram koma í dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-851/2017 séu skólabókardæmi um það hvenær vinnuveitandi ber skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem kennari verður fyrir af hálfu nemanda.
Málavextir voru þeir að nemandi réðst á íþróttakennara í grunnskóla sem leiddi til þess að íþróttakennarinn hlaut varanlega örorku. Af skráningum í Mentor var ljóst að nemandinn fékk oft reiðiköst og þá t.d. klóraði hann, beit, lamdi og sparkaði í samnemendur og kennara. Af skráningum mátti einnig ráða að hegðunarvandi og ofbeldi nemandans tengdist aðallega frímínútum, íþrótta- og sundkennslu. Stuðningsfulltrúi fylgdi nemandanum að jafnaði í íþróttatímum á meðan nemandinn var á yngra stigi en því var hætt á unglingastigi án þess að fram færi áhættumat, „án þess að sérfræðigögn hafi legið fyrir um vandamál hans og þrátt fyrir að ljóst hafi verið að hann gat orðið hættulegri kennurum og nemendum eftir því sem hann varð eldri eins og síðar kom á daginn. Ekkert í fari drengsins gaf tilefni til þess að hætta stuðningi við hann í íþróttatímum. Greining á vanda hans fór fram er hann hóf skólagöngu en ekki aftur fyrr en eftir að hann réðst að“ íþróttakennaranum.
Eftirfarandi kom einnig fram í dómnum: „ Í 7. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla kemur fram að við grunnskólann skuli vera skólastjóri sem er forstöðumaður grunnskóla, stjórnar honum, veiti faglega forystu og beri ábyrgð á starfi skólans gagnvart sveitarstjórn. Í þessu ákvæði felst skylda skólastjóra til að gæta að öryggi nemenda og kennara þar sem kennsla fer fram. Í 3. mgr. 14. gr. laganna er kveðið á um hvernig með skuli fara ef hegðun nemanda reynist verulega áfátt, m.a. með aðstoð sérfróðra ráðgjafa, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. Fyrir liggur að slíkra ráða var leitað er nemandinn var [...] ára en ekki aftur fyrr en eftir líkamsárásina en þá var nemandinn að verða [...] ára.“
Í ljósi þess var talið að saknæm vanræksla skólastjórnenda hefði átt þátt í því að A varð fyrir varanlegu líkamstjóni af völdum nemandans
„Í 2. mgr. 17. gr. grunnskólalaga er kveðið á um að nemandi með sérþarfir eigi rétt á stuðningi í samræmi við metnar sérþarfir. Nægilega er sannað í málinu að nemandinn naut ekki stuðnings í íþróttatímum eftir að hann komst á unglingastig þrátt fyrir margítrekuð hegðunarbrot og ofbeldi gagnvart samnemendum og kennurum. Ákvæði um skyldu til þess að gæta að öryggi á vinnustað er einnig að finna í 37. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þá er í reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum kveðið nánar á um til hvaða úrræða sé unnt að grípa vegna óæskilegrar hegðunar nemenda, sbr. 11. og 12. gr., sbr. einnig reglugerð nr. 585/2010 um nemendur með sérþarfir, einkum 6. gr., og reglugerð nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum.“
„Samkvæmt framansögðu var af hálfu skólans skráður fjöldi tilvika um alvarlegan hegðunarvanda og ofbeldishneigð nemandans alla hans skólagöngu. Þrátt fyrir það var umsjón og eftirliti hætt með drengnum í íþróttatímum er hann var kominn á unglingsaldur án þess að sérfræðigögn hafi legið fyrir um vandamál hans og þrátt fyrir að ljóst hafi verið að hann gat orðið hættulegri kennurum og nemendum eftir því sem hann varð eldri eins og síðar kom á daginn. Ekkert í fari drengsins gaf tilefni til þess að hætta stuðningi við hann í íþróttatímum. Greining á vanda hans fór fram er hann hóf skólagöngu en ekki aftur fyrr en eftir að hann réðst að stefnanda.“
„Atvikaskráning í Mentor-kerfi skólans er hins vegar sönnun þess að drengurinn glímdi við sömu vandamál og áður og að þau fóru vaxandi. Í ljósi þess verður talið að eftirliti skólans hafi verið ábótavant og að starfsmenn [...] hafi í umrætt sinn vanrækt umsjónarskyldu sína með drengnum með þeim hætti að til bótaskyldu leiði. Stefndi Hafnarfjarðarbær ber því sem rekstraraðili skólans skaðabótaábyrgð á líkamstjóni stefnanda á grundvelli meginreglu skaðabótaréttarins og reglunnar um vinnuveitendaábyrgð. Viðurkenningarkrafa stefnanda verður því tekin til greina á hendur stefnda Hafnarfjarðarbæ og á hendur stefnda Sjóvá-Almennum tryggingum hf. sem ábyrgðartryggjanda.“
Ef um hefði verið að ræða nemanda sem hefði ekki átt sér neina sögu um að beita ofbeldi eða missa stjórn á skapi sínu og ef auk þess hefði verið hægt sanna að nemandinn gæti borið ábyrgð á sjálfum sér má ætla að vinnuveitandi hefði ekki borið skaðabótaábyrgð á slysinu. Í slíku tilviki hefði stafsmaðurinn líklega aðeins fengið greiddar bætur frá Sjúkratryggingum Íslands auk þeirra bóta sem kveðið er á um í kjarasamningnum en þær eru almennt töluvert lægri en skaðabætur sem greiddar eru eftir almennum reglum skaðabótaréttarins. Í slíku tilviki hefði íþróttakennarinn mögulega þurft að stefna nemandanum sjálfum og/eða foreldum hans til þess að fá fullar bætur.
Í þessu samhengi má einnig nefna dóm Landsréttar í máli nr. 844/2023. Málavextir voru þeir að A sem var kennari varð fyrir árás af hálfu nemanda í matsal grunnskóla sem varð þess valdandi að A hlaut 10% örorku. Aðdragandi árásarinnar var sá að nemandinn var að elta yngri nemanda í matsalnum og rétti A út höndina til að fá nemandann til að hætta hlaupunum. Viðbrögð nemandans voru að kýla A með krepptum hnefa í vinstri kjálka. A greip þá um miðbúk nemandans aftan frá, hélt honum með bak hans í bringu hennar og kom nemandanum út úr matsalnum. Eftir átök við nemandann féll A og lenti á tröppum. Mun nemandinn þá hafa náð að skalla A í andlitið þannig að hún vankaðist. A hafði reynt að kalla á hjálp en ekki fengið aðstoð fyrr en hún kom að tröppunum. Það var mat Landsréttar að A bar „beinlínis skylda til þess að bregðast við háttsemi nemandans og var þar fráleitt um að ræða líkamlegt inngrip í refsingarskyni, sbr. ákvæði 1. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar, heldur var ætlunin að grípa inn í óásættanlega og mögulega skaðlega hegðun nemandans sem hljóp á eftir yngri nemanda um matsalinn í andstöðu við reglur skólans“.
Nemandinn átti sögu um að vera óútreiknanlegur og að taka æðisköst þar sem hann missti stjórn á sér. Þá þurfti inngrip frá starfsfólki til að stöðva hann svo hann slasaði ekki sjálfan sig og aðra eins og gerst hafði áður.
A byggði á því að vanræksla stjórnenda grunnskólans og gáleysi starfsmanna hefði leitt til þess að umræddur nemandi hefði verið hömlulaus og ráðist á hana í umrætt skipti.
Þá var litið til þess að áður en atvikið átti sér stað hafði kennari, sem sérstaklega var ráðinn til að sinna nemandanum verið falið að sinna annarri kennslu og enginn annar starfsmaður var fenginn í staðin til að sinna nemandanum. Auk þess hefði hvorki atvikið sem leiddi til tjóns A né eldri atvik sem vörðuðu nemandann, og kölluðu á líkamlegt inngrip, verið skráð í samræmi við skyldu samkvæmt 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. Sveitarfélagið bar hallann af því að atvikið var ekki tilkynnt til Vinnueftirlitsins.
Að mati Landsréttar virtist sú vanræksla hafa leitt til þess að skólastjórnendur höfðu ekki rétta mynd af stöðu nemandans og þörf á ráðstöfunum til að gæta að öryggi nemenda og kennara innan skólans. Í ljósi þess var talið að saknæm vanræksla skólastjórnenda hefði átt þátt í því að A varð fyrir varanlegu líkamstjóni af völdum nemandans. Var því viðurkennd skaðabótaskylda B og réttur A til greiðslu bóta úr ábyrgðartryggingu sveitarfélagsins.
Hvaða lærdóm má daga af málunum?
- Skráning: Það ber að skrá öll ofbeldisatvik sem og atvik þar sem beita þarf líkamlegu inngripi.
- Stuðningur og sérþarfir: Það er á ábyrgð skólastjóra/skólameistara að tryggja að nemendur fái viðeigandi stuðning. Nemendur þurfa ekki að vera með formlegar greiningar til að fá við eigandi stuðning. Fjárhagur skóla/fjár hagsáætlun er ekki réttlætingarástæða til að veita ekki viðeigandi stuðning.
- Áhættumat: Það þarf að fara fram sérstakt áhættumat vegna hvers nemanda sem er líklegur til að beita ofbeldi eða vera sjálfum sér eða öðrum hættulegur. Grípa þarf til viðeigandi úrræða í tengslum við áhættumatið. Ef til skoðunar er að draga úr slíkum úrræðum t.d. stuðningi þarf fyrst að gera nýtt áhættumat. Gera þarf nýtt áhættumat með reglubundnum hætti.
- Tilkynning til Vinnueftirlits og Sjúkratrygginga Íslands: Skólastjóra/ skólameistara ber að tilkynna slys og líkamstjón til Vinnueftirlitsins og Sjúkratrygginga Íslands tafarlaust.
- Líkamlegt inngrip: Í sumum tilvikum ber starfsmönnum að grípa inn í aðstæður með því að beita líkamlegu inngripi.
- Öryggi: Skólastjóri/skólameistari ber ábyrgð á öryggi nemenda og starfsfólks.
Niðurstöður
Ljóst er að kennarar og skólastjórnendur njóta nokkurrar tryggingaverndar í tengslum við störf sín. Sú tryggingavernd er þó mismunandi eftir skólastigum auk þess sem verndin er ekki nægilega sterk verði þeir fyrir tjóni vegna líkamsárásar t.d. nemanda sem talinn er geta borið ábyrgð á gerðum sínum og vinnuveitandi hefur gripið til viðeigandi ráðstafana til að koma í veg fyrir slys eða takmarka líkur á því.