Ferðablaðið 2014 er komið út
Fréttir|28. mars 2014
Ferðablað Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands fyrir komandi sumar er komið út. Í Ferðablaðinu er að finna greinargóðar upplýsingar um orlofshús sem standa félögum KÍ til boða. Úrval orlofshúsa í ár er meira en í fyrra og eru ný hús sérstaklega merkt.
Þá er greint frá ýmsum afsláttum og vildarkjörum sem félagsmenn geta nýtt sér á ferðalögum innanlands sem erlendis
Ferðablaðið verður sent í pósti til allra félagsmanna en það er einnig aðgengilegt á vefnum.