FF og FS gera kröfu um raunhæft kostnaðarmat

Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) vara eindregið við því að frumvarp til breytinga á lögum um framhaldsskóla verði lagt fyrir Alþingi án þess að fram fari raunhæft kostnaðarmat. Lýsa bæði félög sig reiðubúin til samstarfs um innihald frumvarpsins og kalla jafnframt eftir dýpri skoðun á málefnum skólastigsins.
Félag framhaldsskólakennara (FF) telur nýtt frumvarp um framhaldsskóla ekki ná markmiðum sem ráðuneyti menntamála hefur lýst; svo sem að skapa nemendum og starfsfólki sem bestar aðstæður og að tryggja fjölbreytt og aðgengilegt námsframboð og síðast en ekki síst jöfnuð og gæði óháð námsformi.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn Félags framhaldsskólakennara sem birt er í samráðsgátt stjórnvalda og fjallar um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008.
Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) kemst að svipaðri niðurstöðu í sinni umsögn. Þar segir að frumvarpið sé „hvorki nægilega rökstutt né fjármagnað“. Alls bárust yfir tuttugu umsagnir um málið.
Bæði félögin gera þá kröfu að raunhæft mat á kostnaði og áhrifum á framhaldsskólana liggi fyrir áður en frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi.
„Ný verkefni verða ekki leyst innan fjárheimilda sem fara lækkandi,“ segir orðrétt í umsögninni og bent er á að aukið utanumhald, ráðgjöf, samstarf skóla og einstaklingsmiðað skipulag muni kalla á meiri vinnu. Fram kemur að fyrirhugaðar breytingar séu á dagskrá á sama tíma og fjármagn til framhaldsskóla verður skorið niður um ca. 1,5% á ári – sem nemur um 85 stöðugildum kennara á meðallaunum ár hvert. Þar á ofan sé gert ráð fyrir að verst stöddu skólarnir skili auknum afgangi til þess að greiða til baka hallarekstur síðustu ár.
Að mati FF er þessi staða fullkomlega óboðleg.
Í umsögn sinni tekur Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) í sama streng. Gerir félagið athugasemdir við að engin tilraun sé gerð til að meta þann kostnað sem hlytist af ef frumvarpið yrði að lögum.
Námsbrautir fyrir fatlaða og ófatlaða
Í umsögn FF er fjallað um fjölgun og þróun starfsbrauta í framhaldsskólunum í takti við mikla fjölgun nemenda sem þurfa á miklum og fjölbreyttum stuðningi að halda í námi. Á starfsbrautum sé unnið frábært starf við erfið skilyrði eins og nýlegar tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna bera vitni um. Í frumvarpinu er þó ekki minnst á starfsbrautir en í staðinn talað um námsbrautir fyrir fatlaða og að mikilvægt sé að skýra hlutverk þeirra og innritunarskilyrði. Þannig má skilja frumvarpið þannig að einungis sá nemandi, sem fellur undir skilgreininguna fatlaður, fái inngöngu á þær brautir sem hingað til hafa gegnt nafninu starfsbrautir. Aðrir nemendur, sem ekki komast beint inn á 2. hæfniþrep á skilgreindum námsbrautum, þurfi að fara inn á almennar námsbrautir sem miða að framhaldsskólaprófi. Í umsögn sinni bendir FF á að hugtakið fötlun er flókið í meðförum og að framhaldsskólar hafi einmitt þróast í þá átt að horfa á stuðningsþarfir nemenda með mun almennari hætti en að aðgreina þá í fatlaða og ófatlaða – hvað þá að aðeins fatlaðir þurfi sértækan stuðning og ófatlaðir ekki.
FF bendir líka á þá óþægilegu staðreynd að námsbrautir fyrir fatlaða eru kostnaðarsamar en það hafa almennar námsbrautir alls ekki verið í samanburðinum. Það er því ekki óeðlilegt að fólki kunni að detta í hug að þetta sé fyrst og fremst sparnaðaraðgerð.
Fjarnám getur skipt sköpum
FF lítur svo á að allir geti verið sammála um að fjarnám sé gríðarlega mikilvægur þáttur í framkvæmd skólastarfs. Ljóst sé af lestri frumvarpsins að ætlunin sé auka samræmi og yfirsýn, sem er að mati FF og FS nauðsynleg aðgerð, en félögin telja bæði að frumvarpið beri í sér mikla hættu á að sveigjanleiki og möguleikar nemenda til að stunda fjarnám minnki og að möguleikar skóla til þess að veita nemendum fjarnám sem þess óska takmarkist. Með því gæti rekstrargrundvöllur margra skóla brostið. Bæði félög telja að lagabreyting og ný reglugerð um fjarnám séu ekki nauðsynlegar aðgerðir. Þess í stað þurfi að endurskoða aðalnámskrá framhaldsskóla og það í víðtæku samráði við félögin bæði og fagfólk í kennarastéttinni.
Frumvarpið kallar eftir að sömu gæðakröfur gildi óháð námsformi. FF telur það sjálfsagða kröfu en bendir á að ræða verði starfsskilyrði fjarnámskennara. Þegar rætt verði um skýrari umgjörð um fjarnám sé jafn nauðsynlegt að ræða umgjörð um greiðslur vegna fjarkennslu.
Kallað eftir heildstæðri framtíðarstefnu
Í umsögnum FF og FS kemur skýrt fram að breytingar á lögum um framhaldsskóla verði að byggjast á heildstæðu mati á stöðu skólastigsins, þörfum nemenda og áhrifum fyrirhugaðra breytinga.
Þá telja bæði félög tímabært að móta heildstæða framtíðarstefnu fyrir framhaldsskólann. Lög um framhaldsskóla tóku gildi árið 2008 og samfélagið hefur tekið stakkaskiptum á þeim 18 árum sem liðin eru síðan, meðal annars með þróun gervigreindar og breyttri samsetningu nemendahópsins sem stundar nám við skólana.
„Félagið telur mikilvægt að stigin verði stór og markviss skref til að laga framhaldsskólastigið að breyttu samfélagi. Vinna við þróun lagaramma skólastigsins þarf að fara fram í fullu samráði við þá sérfræðinga sem sinna málefnum framhaldsskólans dag frá degi, hvort sem þeir gegna stjórnunarstörfum eða sinna kennslu,“ segir í niðurlagi umsagnar FS