FG vísar kjaraviðræðum til sáttasemjara

Fréttir|18. mars 2014

Félag grunnskólakennara hefur vísað kjaraviðræðum sínum til sáttasemjara. Samninganefnd og svæðaformenn FG telja að of mikið beri í milli í viðræðunum.
Samninganefnd FG hefur að undanförnu kannað möguleika á að gera kjarasamning til ársins 2017 með það að markmiði að jafna laun grunnskólakennara við aðrar háskólamenntaðar stéttir.
„Krafa okkar er sem fyrr að laun grunnskólakennara verði sambærileg við laun annarra háskólamenntaðra starfsmanna með sambærilega menntun og ábyrgð. Það er í fullu samræmi við kannanir, fundi með trúnaðarmönnum og ályktanir sem okkur hafa borist úr skólum undanfarið,“ segir í bréfi sem Ólafur Loftsson, formaður FG, sendi félagsmönnum sínum fyrr í dag.

Í bréfinu segir jafnframt að ríki og sveitarfélög hafi boðið viðsemjendum sambærilega samninga og gerðir voru á almennum markaði, til skamms tíma með 2,8% hækkunum.
„Samninganefnd FG hefur ætíð hafnað því að það komi til greina að semja til skamms tíma um 2,8%. Það hefur ekki og mun ekki koma til greina að hálfu félagsins,“ segir í bréfi Ólafs.