Fimm rannsóknarverkefni styrkt um 148,5 milljónir

Fréttir|18. febrúar 2026
Dan Dimmock 3Mt71mkgjq0 Unsplash

Menntarannsóknasjóður hefur tilkynnt hvernig úthlutun ársins verður háttað.

Fimm rannsóknarverkefni hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði að heildarupphæð 148,5 milljónir króna. 

Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

Úthlutunarnefnd skipuð fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis, Kennarasambands Íslands, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samstarfsnefndar háskólastigsins mat umsóknir og gerði tillögu til mennta- og barnamálaráðherra um styrki.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrk að upphæð 29,7 milljónir króna hvert. 

  • Guðrún Ragnarsdóttir, menntavísindasvið, HÍ: Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf: Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
  • Hannes Ottósson, menntavísindasvið, HÍ: Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara.
  • Sara Margrét Ólafsdóttir, menntavísindasvið, HÍ: Stafræn tækni í lífi barna (STÍL).
  • Eva Harðardóttir, menntavísindasvið, HÍ: Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.
  • Valgerður S. Bjarnadóttir, menntavísindasvið, HÍ: Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi.