Fjölmenni á málþingi KÍ – hvað svo?
KÍ stóð fyrir málþingi mánudaginn 17. febrúar sl. sem bar yfirskriftina „Erfiðustu spurningarnar koma ekki á prófi! - Erum við að horfa til þeirrar hæfni sem framtíðin þarfnast? Skólamálaráð stóð að málþinginu og komu fulltrúar allra skólastiga/skólagerða að undirbúningi þess.
Á þingi KÍ 2011 var gerð samþykkt sem fól í sér að KÍ myndi beita sér fyrir að gerð yrði verkáætlun um eflingu list- og verkgreina. Skólamálaráð lítur á málþingið sem lið í því að hrinda þeirri vinnu af stað. Einnig er þess vænst að málþingið efli umræðu um innihald náms og kennsluaðferðir og hvetji kennara, skólastjórnendur og aðra sem það sóttu til að ígrunda hvaða vægi list- og verkgreinar fá í skólastarfi og hvort kennsluaðferðir séu nógu skapandi og höfði til nemenda í dag.
Það er óumdeilt að list- og verkgreinar eru mikilvægar í skólastarfi og samfélaginu öllu. Þær þroska skapandi hugsun og virkni, samstarf og samskipti, félagsþroska og samlíðan, tjáningu og fínhreyfingar og efla sjálfsmynd og sjálfstæði nemenda. Þær gera skólastarfið fjölbreyttara og geta komið til móts við þá sem af einhverjum ástæðum standa höllum fæti í „hefðbundnu“ námi. Styrkleikar margra nemenda liggja á þessum sviðum og um leið og þeim er gefinn kostur á að finna áhugasvið sitt þá blómstra og eflast þeir í öðru námi og líður betur. Skólagangan verður jákvæðari og námsárangur í heild betri.
Hvort það var yfirskriftin eða innihaldið eða hvort tveggja sem vakti athygli veit ég ekki, en fjölmenni var á málþinginu (yfir 200 manns) og gerður var góður rómur að innihaldinu og skipulagi þess. Það var einkar ánægjulegt að fá virtan skóla- og fræðimann, dr. Lindu Nathan, en hún var heiðursgestur málþingsins og aðalfyrirlesari. Linda hreif málþingsgesti með sér þegar hún sagði frá reynslu sinni við að innleiða list- og verkgreinar og aðferðir slíkrar kennslu sem miðpunkt í námskrá skóla sem hún setti á stofn í Boston og hvaða áhrif það hafði á stöðu og námsárangur nemenda.
Fleiri fluttu styttri erindi og ávarpaði mennta- og menningarmálaráðherra málþingsgesti. Í lokin voru pallborðsumræður með ýmsum aðilum, þar á meðal var Elías Arnar Hjálmarsson, nemandi í Borgarholtsskóla, sem sagði frá reynslu sinni af skólakerfinu.
Hópurinn sem sá um undirbúning málþingsins mun hittast og ákveða hvernig verður unnið með það sem fram kom á þinginu og með hvaða hætti mögulegt er að gera listkennslu að sjálfsögðum hluta í skólastarfi á öllum skólastigum. Hópurinn mun einnig ræða hvernig má vinna að því að breyta viðhorfum samfélagsins frá þeirri miklu áherslu sem hingað til hefur verið lögð á bóknám í það að námsframboð verði fjölbreyttara og að nemendur sæki meira í aðrar greinar.
KÍ þakkar öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við undirbúning og framkvæmd málþingsins og einnig öllum þátttakendum fyrir komuna. Efni málþingsins verður kynnt nánar í næsta Epli og viðtal við dr. Lindu Nathan mun birtast í næstu Skólavörðu. Myndir frá þinginu má sjá á Facebook-síðu KÍ.
Björg Bjarnadóttir, varaformaður KÍ.