Formanns- og stjórnarkjör FF hefst á mánudag

Fréttir|23. janúar 2026
Kamran Abdullayev P8qggu2y3ps Unsplash

Félagsfólk í Félagi framhaldsskólakennara kýs formann og stjórn félagsins í komandi viku.

Kjörstjórn FF hefur ákveðið kosningar um formann og stjórnarfólk Félags framhaldsskólakennara skuli standa dagana 26. til 29. janúar 2026. 

Atkvæðagreiðslan hefst klukkan tíu á mánudag og lýkur klukkan tíu á fimmtudag. Kosningarnar verða rafrænar og fara fram á Mínum síðum á vef KÍ. 

Kjörstjórn FF beinir því til trúnaðarmanna að ganga á eftir kosningum svo kjörsókn verði góð. Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna verða sendar út mánudaginn 26. janúar.

 

Frambjóðendur til formanns FF eru:

  • Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
  • Simon Cramer Larsen, formaður skólamálanefndar FF og dönskukennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla. 

Hægt er að kynna framjóðendur til formanns hér. 

 

Frambjóðendur til stjórnar FF eru:

  • Anna Jóna Guðmundsdóttir, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
  • Arnar Guðmundsson, Borgarholtsskóla
  • Björn Gísli Erlingsson, Menntaskólanum á Egilsstöðum
  • Daði Guðjónsson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
  • Guðmundur Björgvin Gylfason, Fjölbrautaskóla Suðurlands
  • Gunnvör Rósa Eyvindardóttir, Menntaskólanum við Sund
  • Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
  • Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Borgarholtsskóla
  • Simon Cramer Larsen, Fjölbrautaskólanum við Ármúla
  • Sólrún Geirsdóttir, Menntaskólanum á Ísafirði
  • Stefán Svavarsson, Menntaskólanum í Kópavogi

Kosnir verða fjórir fulltrúar í stjórn FF. Upplýsingar um frambjóðendur má finna hér.

Kjörstjórn FF skipa Karl Jóhann Garðarsson, Kristófer Eggertsson og Þórunn Steindórsdóttir