Fornám í sjónlistum: Reynsla og lærdómur

Fréttir|24. júní 2026
Yfirferð Í Lok Teikniáfanga
Rannsóknasjóður KÍ

Björg Eiríksdóttir og Borghildur Ína Sölvadóttir, kennarar við Verkmenntaskólann á Akureyri, gerðu rannsókn á reynslu fyrsta námshópsins í fornámi í sjónlistum í kvöldskóla á Listnáms- og hönnunarbraut. Rannsóknin var styrkt af Rannsóknasjóði KÍ og nú liggur lokaskýrsla fyrir en hér fyrir neðan er sagt frá því helsta sem þar kemur fram.

Sýnt var að þörf væri á að koma til móts við fjölbreyttari hóp nemenda á landsbyggðinni til að stunda fornám í sjónlistum á framhaldsskólastigi og í samhengi við ný tækifæri sem nú hafa skapast í listnámi á háskólastigi utan Reykjavíkur í samstarfi Háskólans á Akureyri og Listaháskóla Íslands. Í dagskóla á Listnáms- og hönnunarbraut VMA stunda nemendur fornám samhliða bóklegu námi til stúdentsprófs á þremur árum en haustið 2025 var sett á fót eins árs fornám í sjónlistum í kvöldskóla, án bóklega námsins. Kvöldnámið var skipulagt sem tveggja anna nám. Önnunum var skipt í fjórar námslotur þar sem nemendur luku fjórum áföngum í hverri lotu, sextán áföngum alls. Mikil áhersla var lögð á sjálfstæða sköpun nemenda undir handleiðslu kennara í gegnum fjölbreytta miðla til að gefa sem besta innsýn í heim sjónlistanna.

Rannsóknin hafði það meginmarkmið að bæta skipulag og kennsluhætti til framtíðar. Aðferðum starfendarannsókna var beitt og var gagna aflað með spurningalistum og viðtölum við nemendur kvöldskólans. Ætlunin var að dýpka þekkingu og skilning á upplifun og reynslu nemendanna af innra og ytra skipulagi námsins þennan fyrsta vetur og nýta hana til áframhaldandi þróunar námsins og koma enn frekar til móts við fjölbreyttan nemendahóp.

Helstu niðurstöður

Niðurstöður sýna að nemendur voru almennt mjög ánægðir með námið og töldu það bæði krefjandi og lærdómsríkt. Helstu hvatar þess að þau sóttu um voru að efla eigin færni í listum, kynnast nýjum miðlum og þróa eigin sköpun og stóð námið að mestu undir væntingum.

„Ég get með vissu sagt að þetta er skemmtilegasta nám sem ég hef tekist á við.“

Varðandi ytra skipulag kom fram að nemendur voru ánægðir með lotuskiptingu og skipulag kennslu en upplifðu jafnframt að álag væri mikið og oft hefði verið hratt farið. Sérstaklega var bent á að erfitt gæti verið að ljúka verkefnum einnar lotu áður en næsta hæfist. Fram kom að hlé á milli lota gæti dregið úr streitu og skapað rými fyrir úrvinnslu og ígrundun. Þá kom einnig fram að bæta þyrfti kynningu á náminu í upphafi, sérstaklega varðandi kennslukerfi.

og kröfur til heimanáms. Námið var skipulagt í fjórum lotum og voru nemendur almennt ánægðir með það og þótti þeim vera jafnvægi milli verklegra og fagbóklegra áfanga.

Um innra skipulag námsins ríkti mikil ánægja. Kennsluhættir voru taldir faglegir og kennarar styðjandi og hvetjandi. Sérstök áhersla á verkefnavinnu og skapandi ferli þótti vera styrkur námsins. Nemendur unnu sjálfstætt að verkefnum með leiðsögn kennara og upplifðu aukið sjálfstraust, aukna færni og dýpri skilning á eigin vinnuferli. Aðferðir sem lögðu áherslu á tilraunir, hugmyndavinnu og frelsi í útfærslu verkefna þóttu sérstaklega gagnlegar.

Námsmat var byggt á umsögnum án tölulegra einkunna og hlaut það mjög jákvæð viðbrögð. Nemendur töldu slíkt fyrirkomulag veita betri leiðsögn og styðja við faglega þróun. Kallað var eftir auknu vægi munnlegrar endurgjafar og yfirferðarsamtala, þar sem nemendur fengju frekara tækifæri til að ræða verk sín og vinnuferli. Heimanám þótti mikilvægt en umfang þess kom mörgum á óvart, sérstaklega þar sem margir stunduðu vinnu samhliða námi.

„Námið er virkilega góður stökkpallur fyrir áframhaldandi nám í listum sem ég mun nýta mér“

Rannsóknin sýnir jafnframt að námið hafði veruleg áhrif á nemendur, bæði faglega og persónulega. Þeir upplifðu aukna trú á eigin getu, dýpri skilning á listum og aukna hæfni í skapandi vinnu. Margir lýstu því að námið hefði opnað nýjar leiðir í hugsun og hvatt þá til áframhaldandi listsköpunar. Sumir sáu fyrir sér að sækja frekara nám í listum og töldu kvöldskólann vera mikilvægan stökkpall í þá átt.

Tækifæri til umbóta

Í niðurstöðum felast ýmis tækifæri til umbóta. Mikilvægt er að skýra betur eðli námsins í kynningu og bæta aðgengi að upplýsingum. Aðlaga þarf vinnuálag, mögulega með því að fækka áföngum en einnig koma í veg fyrir endurtekningu í efnisinnihaldi milli áfanga. Sérstaklega mikilvægt er að skapa rými fyrir hlé á milli lota til að auka svigrúm til úrvinnslu og ígrundunar.

Rannsóknin er fyrsta skrefið í áframhaldandi þróun námsins. Hún skilaði verðmætri þekkingu sem nýtast mun við frekari mótun þess í kvöldskóla og jafnvel í dagskólanum.

Heildarniðurstöður benda til þess að fornámið í sjónlistum í kvöldskóla VMA sé mikilvæg viðbót við menntunartækifæri á landsbyggðinni og geti með áframhaldandi þróun og umbótum orðið mikilvægt framlag til að auka aðgengi að listnámi utan

höfuðborgarsvæðisins. Námið er lóð á vogarskálarnar til að mæta þörfum fjölbreytts hóps nemenda og getur haft djúpstæð áhrif á bæði hæfni þeirra og sjálfsmynd sem skapandi einstaklinga.