Förum fram á sanngjarnt endurgjald fyrir kennarastarfið
„Það er unnið hörðum höndum að því að ná samkomulagsgrundvelli. Við vinnum eftir fundaáætlun sem gerir ráð fyrir nokkrum fundum með tiltekinni dagskrá í hverri viku,“ segir Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, um gang samningaviðræðna FF og FS við ríkið.
Alls hafa verið haldnir fimmtán samningafundir frá því í byrjun desember á síðasta ári en samningar FF og FS við ríkið runnu út í lok janúar síðastliðinn.
Aðalheiður segir að því miður hafi skipulegar umræður farið mjög seint af stað og það sé gagnrýnivert. Staðreyndin um lök launakjör framhaldsskólakennara og að þeir hafi dregist aftur úr viðmiðunarhópum er ekki fyrst að koma upp núna.
„Það er langt síðan þessi slæma launastaða varð ljós og það má gagnrýna viðsemjandann, ríkið, fyrir andvaraleysi og að hafa ekki brugðist miklu fyrr við. Kjaraviðræðurnar snúast fyrst og fremst um sanngjarnt endurgjald fyrir kennarastarfið, launakjör sem eru sambærileg við þau sem þeir hópar hafa sem við berum okkur saman við hjá sama vinnuveitanda. Kennarastarfið er á allan hátt frábært og gefandi en endurgjaldið verður að laga,“ segir Aðalheiður.
Atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls hjá Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í ríkisreknum framhaldsskólum lauk á föstudag. Niðurstöðu úr atkvæðagreiðslunni er að sögn Aðalheiðar að vænta í vikulok.
Fari svo að félagsmenn KÍ í ríkisreknum framhaldsskólum samþykki verkfallsboðun og samningar náist ekki á næstu vikum gæti verkfall hafist um miðjan næsta mánuð.