Forysta KÍ fundar með nýjum mennta- og barnamálaráðherra

Formenn Kennarasambandsins funduðu með nýjum mennta- og barnamálaráðherra á miðvikudag.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands (KÍ) og Jónína Hauksdóttir varaformaður KÍ funduðu með Ingu Sæland, nýjum mennta- og barnamálaráðherra í ráðuneytinu á miðvikudag.
Inga Sæland, sem gegnt hefur embætti félags- og húsnæðismálaráðherra frá 2024, tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra 11. janúar síðastliðinn af Guðmundi Inga Kristinssyni, sem baðst lausnar vegna veikinda.
Markmiðið að ná sem mestum árangri
„Við náðum að snerta á mörgum af stóru málunum á fundinum og teljum okkur vera á góðum stað hvað það varðar að vera með einstakling í mennta- og barnamálaráðuneytinu sem að ber mikinn metnað fyrir að ná árangri í skólakerfinu,“ segir Magnús Þór, formaður KÍ, um fundinn.
„Ráðherraskiptin kalla auðvitað á frekari aðkomu Kennarasambandsins, kalla á að við lærum að vinna saman og eigum fleiri hreinskiptin samtöl um hvaða leiðir við teljum farsælastar til að ná markmiðinu um sem bestan árangur í skólakerfinu.“
„Við horfum bara fram á veg og ætlum að ná höndum saman. Allt snýst þetta um að börnin okkar og ungmenni eiga það besta skilið og þá verðum við, öll sem stöndum að því kerfi, að horfa saman á verkefnið og reyna að ná eins miklum árangri og við mögulega getum,“ segir Magnús Þór.
Áherslur ríkisstjórnarinnar í menntamálum
Ríkisstjórnin boðaði í stefnuyfirlýsingu sinni sókn í menntamálum og að bæta umhverfi nemenda og kennara, með áherslu á íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum, segir í tilkynningu um ráðherraskiptin á vef Stjórnarráðs Íslands.
Styðja þurfi skólakerfið til að mæta áskorunum, tryggja inngildingu barna sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og snemmtæka íhlutun fyrir börn með fjölþættan vanda. Þá er kveðið á um jafnt aðgengi allra barna að íþróttum, listum og frístundastarfi og innleiðingu samræmdra reglna um notkun snjalltækja og samfélagsmiðla í skólum.