Frá verkfallsstjórn FF og FS

Fréttir|17. mars 2014

17. mars 2014, uppfært 19. mars 2014

Í ljósi nýhafins verkfalls hvetur verkfallsstjórn FF og FS til góðrar samvinnu um framkvæmd verkfallsaðgerða til þess að tryggja farsæla og fumlausa framkvæmd. Hún telur því rétt að árétta nokkur atriði.

Hverjir eru í verkfalli?

  • Allir framhaldsskólakennarar og leiðbeinendur með ótímabundna og tímabundna ráðningu, sama hvert starfshlutfall þeirra er.
  • Allir náms- og starfsráðgjafar sem eru á kjarasamningi KÍ/framhaldsskóla. 
  • Allir skólastjórnendur sem taka laun skv. samningi KÍ/framhaldsskóla.

Hverjir eru ekki í verkfalli?

  • Skólameistarar enda fá þeir laun sín ákvörðuð af kjaranefnd og eru ekki í stéttarfélagi.
  • Stundakennarar sem þiggja laun eftir reglum fjármálaráðuneytis og KÍ um tímakaup og eru utan stéttarfélaga.
  • Starfsmenn skóla sem ekki sinna kennslu og eru ekki félagar í KÍ (FF eða FS).

Vakin er athygli á 2. mgr. í 18. grein laga nr. 94/1986 þar sem segir:

„Þegar verkfall er löglega hafið er þeim sem það beinist gegn óheimilt að stuðla að því að afstýra því með aðstoð einstakra félagsmanna þess félags sem að verkfallinu stendur.“

Störf og verk sem hafa verið á könnu félagsmanna í FF og FS falla niður í verkfalli og öðrum starfsmönnum er óheimilt að ganga í þau.

Til áréttingar

Viðvera

Kennarar eiga ekki að vera við störf né nokkuð annað í skólahúsnæði meðan á verkfalli stendur. Sama á við um allt rafrænt umhverfi skólanna, námsnet, samfélagsmiðla, tölvupóst og þess háttar.

Náms- og kennsluvefir

Öll vinna kennara og stjórnenda við náms- og kennsluvefi er óheimil á meðan á verkfalli stendur. Efni sem tilheyrir verkfallstíma skal ekki birtast nemendum.

Notkun tölvupósts stofnana

Öll kennslu- og starfstengd notkun tölvupósts er óheimil meðan á verkfalli stendur.

Félagsstörf nemenda

Félagsstarfsemi sem fer fram með umsjón kennara fellur niður í verkfalli.

Þar sem félagsmálafulltrúar leggja niður störf falla allar samkomur niður sem þeir hafa umsjón með.

Ferðir á vegum skóla

Ferðir nemenda í fylgd kennara eða stjórnenda og aðrar ferðir félagsmanna á vegum skóla falla niður.

Staðgenglar

Skólameisturum er óheimilt að kalla til staðgengla fyrir sig þótt þeir forfallist meðan á verkfalli stendur enda staðgenglar þeirra í verkfalli.

Skólahúsnæði

Allt húsnæði, þar sem umsjónar og ábyrgðar kennara er krafist, skal vera óaðgengilegt nemendum í verkfalli.

Fjarkennsla/dreifkennsla

Öll fjarkennsla/dreifkennsla á vegum skóla og í umsjón eða á ábyrgð kennara sem eru í verkfalli fellur niður.

Breytingar á stundatöflu og verksviði

Óheimilt er með öllu að færa til stundatöflur eða breyta vinnuskipulagi þeirra starfsmanna skóla sem ekki eru í verkfalli.

Námskeið á vegum skóla

Allt námskeiðahald á vegum skóla í umsjón eða á ábyrgð kennara sem eru í verkfalli fellur niður.

Önnur sértæk mál verða tekin til skoðunar og þetta yfirlit uppfært eftir atvikum.

Fyrirspurnum um álitamál skal beina til verkfallsstjórnar á verkfall@ki.is. Stjórnin afgreiðir þær á daglegum fundum sínum.