Framboðsfrestur til stjórnar FT framlengdur

Fréttir|25. febrúar 2026

Stjórn FT hefur ákveðið að frestur til að bjóða sig fram til stjórnar félagsins verði til hádegis næstkomandi mánudag.

Stjórn FT hefur jafnframt ákveðið að aðalfundur félagsins fari fram 11. apríl næstkomandi.

Frestur til að bjóða sig fram í stjórn FT er til kl. 12:00 á hádegi, mánudaginn 2. mars 2026.

Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks fer fram dagana 9.-12. mars.

Þau sem hyggjast bjóða sig fram í framangreind trúnaðarstörf, einnig þau sem sækjast eftir endurkjöri, skulu senda tilkynningu um framboð á netfangið ft@ki.is  

  • Í póstinum komi fram nafn, kennitala og vinnustaður. Gott að láta mynd fylgja. 

Um önnur framboð

Auglýst er eftir framboðum til fjögurra svæðisbundinna fulltrúa í fagráði FT fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030.

Tilnefningu/kosningu svæðisbundinna fulltrúa fagráðs FT skal lokið fyrir aðalfund félagsins.Frestur til að bjóða sig fram er til kl. 16:00 miðvikudaginn 18. mars.

Áhugasamir sendi póst á netfangið ft@ki.is þar sem fram komi nafn, kennitala og vinnustaður.

Í fagráði tónlistarskóla sitja fjórir fulltrúar, sbr. eftirfarandi svæðaskiptingu, auk stjórnar FT:

  • Frá Vesturlandi og Vestfjörðum – einn fulltrúi
  • Frá Norður- og Austurlandi – einn fulltrúi
  • Frá Kraganum, Suðurlandi og Suðurnesjum – einn fulltrúi
  • Frá Reykjavík – einn fulltrúi

Trúnaðarstörf sem kosið er til á aðalfundi FT

Kosning þriggja fulltrúa í samninganefnd (sem auk stjórnar FT mynda samninganefnd félagsins)

Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

Óskað er eftir að framboð berist fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 18. mars á netfangið ft@ki.is þar sem fram komi nafn, kennitala og vinnustaður.