Framboðsfrestur til trúnaðarstarfa fyrir FL

Fréttir|6. janúar 2014

Frestur til að skila inn framboði til trúnaðarstarfa fyrir Félag leikskólakennara rennur út föstudaginn 10. janúar nk.

Kjósa skal formann og stjórn FL í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund sem haldinn verður 8. og 9. maí 2014. Í önnur trúnaðarstörf er kosið á aðalfundinum og fer röð eftir atkvæðamagni.

Allir frambjóðendur (líka þeir sem eru í trúnaðarstörfum núna og hyggjast gefa kost á sér aftur) skulu fylla út rafrænt eyðublað sem finna má hér: Framboð til trúnaðarstarfa og skal mynd af viðkomandi fylgja í viðhengi.