Framhaldsskólar á toppnum yfir stofnanir ársins

Fréttir|13. febrúar 2026
Sameyki Stofnun Arsins 2025 24

Framhaldsskólar eru vinningshafar í öllum þremur stærðarflokkum könnunar Sameykis um stofnun ársins. Leik- og grunnskólar skora líka hátt.

Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Menntaskólinn á Tröllaskaga eru ríkisstofnanir ársins samkvæmt könnun Sameykis. 

Í könnun Sameykis er spurt um starfsánægju, starfsaðstæður og kjör hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga og sjálfseignarstofnunum. Niðurstöðurnar voru birtar í gær. 

Stærðarflokkar ríkisstofnana í könnuninni eru þrír og miðast við fjölda starfsmanna. Alls komust 139 ríkisstofnanir á listann að þessu sinni. 

Í hverjum stærðarflokki hljóta fimm efstu stofnanirnar sæmdarheitið fyrirmyndarstofnun. 

Menntaskólinn í Kópavogi er sigurvegari í flokki stofnana með 90 starfsmenn eða fleiri. Fjölbrautaskóli Suðurnesja vermir annað sætið og Fjölbrautaskólinn við Ármúla er í fjórða sæti. Vínbúðin er í öðru sæti og fjármála- og efnahagsráðuneytið í fimmta sæti. 

Menntaskólinn á Egilsstöðum trónir á toppnum í flokki meðalstórra stofnana, með 40 til 89 starfsmenn. Tveir aðrir framhaldsskólar komast á topp fimm listann í þessum flokki. Menntaskólinn á Ísafirði er í þriðja sæti og Fjölbrautaskólinn í Garðabæ í því fimmta. Þjóðskrá situr í öðru sæti og Stofnun Árna Magnússonar í fjórða. 

Þá er komið að flokki lítilla ríkisstofnana, með 5 til 39 starfsmenn en þar vermir Menntaskólinn á Tröllaskaga fyrsta sætið. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er í þriðja sæti og Verkmenntaskóli Austurlands í fjórða sæti. Kvikmyndasafn Íslands er í öðru sæti og Sjónstöðin í fimmta. 

Niðurstaðan leiðir berlega í ljós að framhaldsskólar skora hátt í könnuninni miðað við aðrar opinberar stofnanir. Félag framhaldsskólakennara hefur tekið saman helstu niðurstöður könnunarinnar þar sem félagsfólk FF starfar.

 

Leikskólar og grunnskólar skora líka hátt

Sameyki skoðar líka stofnanir á vegum sveitarfélaga og kallast sá flokkur borg og bær. Leikskólinn Gullborg er í öðru sæti yfir stofnun ársins í þessum flokki. Hitt húsið er á toppnum og Félagsmiðstöðin Vígyn í Víkurskóla í þriðja sæti. 

Einn leikskóli og tveir grunnskólar eru á topp fimm lista yfir fyrirmyndarstarfsstaði borgarinnar með 50 eða fleiri starfsmenn. Leikskólinn Rauðhóll er í öðru sæti listans og þar á eftir koma Álftamýrarskóli og Háteigsskóli í þriðja og fjórða sætinu. Hitt húsið er í fyrsta sæti í þessum flokki og skrifstofa velferðarsviðs í því fimmta. 

Leikskólinn Gullborg trónir á toppi listans í flokki fyrirmyndarstarfsstaða borgarinnar með 25 til 49 starfsmenn. Leikskólinn Álftaborg er í öðru sæti. Í næstu þremur sætum eru Skammtímadvöl Árland, Félagsmiðstöðin Askja og Íbúðakjarni Kambavaði. 

Félagsmiðstöðvar taka fimm fyrstu sætin í flokki lítilla starfsstaða, með 24 eða færri starfsmenn. Þær eru Vígyn í Víkurskóla, Holtið í Norðlingaskóla, Fjörgyn í Foldaskóla, Félagsmiðstöðin 105 og Buskinn. 

 

 

Hafa ber í huga að nákvæmni könnunarinnar kemur m.a. fram í vikmörkum og taka þarf niðurstöðum með hliðsjón af því.