Fundað um samstöðu og menntamál á Grænlandi

Fréttir|8. júní 2026
20260608 084236

Leiðtogar kennarasambanda Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó auk fulltrúa Alþjóðasamtaka kennara sitja nú ráðstefnu í Nuuk á Grænlandi. Málefni menntunar á afskekktum svæðum er til umræðu en auk þess verður efnt til viðburðar á morgun þar sem Grænlendingum verður sýnd samstaða með táknrænum hætti.

Leiðtogar kennarasambanda Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó auk fulltrúa Alþjóðasamtaka kennara sitja nú tveggja daga ráðstefnu í Nuuk á Grænlandi. Ráðstefnan er haldin að frumkvæði IMAK, kennarasamtaka Grænlands, og alþjóðlegra samstarfsaðila innan kennarahreyfingarinnar.

Markmið fundarins er annars vegar að ræða stöðu menntamála á Grænlandi, sérstaklega kennslu á móðurmáli, starfsaðstæður kennara og menntun í dreifðum byggðum, og hins vegar að sýna Grænlandi og grænlensku þjóðinni alþjóðlega samstöðu á tímum aukinnar geópólitískrar spennu

Full samstaða með Grænlendingum

Fundurinn er bæði fagleg ráðstefna og pólitísk samstöðuyfirlýsing. Áhersla er lögð á rétt smærri þjóða og frumbyggjasamfélaga til eigin tungumáls, menningar og sjálfstæðrar menntastefnu. „Þátttaka norrænna og alþjóðlegra kennarasamtaka undirstrikar mikilvægi Grænlands í samtímaumræðu um sjálfsforræði, menntun og samfélagsþróun," segir í tilkynningu Education International. 

Kennarasamband Íslands tekur þátt í ráðstefnunni ásamt öðrum norrænum kennarasamtökum og leggur áherslu á samstöðu innan norrænu kennarahreyfingarinnar. Fulltrúar sambandsins taka þátt í umræðum um starfsaðstæður kennara, stefnumótun í menntamálum og mikilvægi þess að rödd kennara heyrist í opinberri umræðu.

Auk forystufólks kennara munu forsætisráðherra Grænlands, Jens Frederik Nielsen, og menntamálaráðherra Grænlands, Nivi Olsen, taka þátt í dagskránni. 

Nánar verður greint frá efni ráðstefnunnar og samstöðuviðburðar í grænlenska þinginu. 

 

20260605 142907 2026 Greenland E (1)