Góð innsýn í starf kennarans
Fréttir|13. febrúar 2014
Ásdís Þórólfsdóttir spænskukennari og Sigurkarl Stefánsson líffræðikennari veita góða innsýn í starf kennarans og launakjör í viðtali sem þau veittu Íslandi í dag á Stöð 2 og birt var í gærkvöld.
Ásdís og Sigurkarl kenna bæði við Menntaskólann við Hamrahlíð, hún hefur kennt í næstum 10 ár og hann í 30 ár. Þau segja frá hvernig starfi kennarans er háttað frá degi til dags og hvernig það er búa við bág launakjör sem eru undir meðallagi miðað við aðra sérfræðinga með sambærilega menntun.
Hægt er að horfa á viðtalið hér.